6. LÆRDÓMUR
ÞÖRFIN Á SIÐFERÐISGILDUM
HVAÐ ERU SIÐFERÐISGILDI?
Fólk með góð siðferðisgildi gerir skýran greinarmun á réttu og röngu. Siðferðisreglur þeirra byggjast ekki á augnablikslíðan. Þær eru öllu heldur byggðar á traustum meginreglum sem það hegðar sér eftir, jafnvel þegar enginn fylgist með.
HVERS VEGNA ERU SIÐFERÐISGILDI MIKILVÆG?
Krakkar heyra alls kyns rangar hugmyndir um siðferði hvort sem það er í skólanum, tónlistinni sem þeir hlusta á eða kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem þeir horfa á. Þessar hugmyndir geta fengið þá til að efast um það sem þeim hefur verið kennt um rétt og rangt.
Það á sérstaklega við um unglinga. Í bókinni Beyond the Big Talk segir að þeir „þurfi að gera sér grein fyrir að margir muni þrýsta á þá að hegða sér á ákveðinn hátt til að þóknast öðrum og hljóta vinsældir. Þeir þurfa líka að læra að taka ákvarðanir í samræmi við sín eigin gildi, jafnvel þó að vinum þeirra líki ekki við það.“ Foreldrar þurfa greinilega að kenna börnum sínum þetta áður en þau verða unglingar.
HVERNIG ER HÆGT AÐ KENNA SIÐFERÐISGILDI?
Settu siðferðisreglur.
MEGINREGLA: „[Fullorðnir] hafa agað hugann til að greina gott frá illu.“ – Hebreabréfið 5:14.
Notaðu orð sem greina rétt frá röngu. Bentu á andstæður í hversdagslegum aðstæðum: „Þetta er heiðarlegt en þetta óheiðarlegt. Þetta er tryggð en þetta ótryggð. Þetta er fallegt en þetta ljótt.“ Með tímanum tengir barnið þitt siðferðisgildin við breytni.
Útskýrðu hvers vegna eitt sé rétt og annað rangt. Spyrðu til dæmis spurninga eins og: „Hvers vegna er best að vera heiðarlegur? Hvernig getur lygi skaðað vináttu? Hvers vegna er rangt að stela?“ Rökræddu við barnið til að hjálpa því að þjálfa samviskuna.
Leggðu áherslu á kosti þess að hafa gott siðferði. Þú gætir sagt: „Ef þú ert heiðarlegur munu aðrir treysta þér.“ Eða þá: „Ef þú ert vingjarnlegur mun fólki finnast gott að umgangast þig.“
Láttu fjölskylduna þekkjast af siðferðisreglum ykkar.
MEGINREGLA: „Prófið ykkur sjálf.“ – 2. Korintubréf 13:5.
Siðferðisreglur ykkar ættu að einkenna fjölskylduna svo að þú getir með sanni sagt:
Í okkar fjölskyldu ljúgum við ekki.
Við sláum ekki aðra eða öskrum á þá.
Við notum ekki ljótt eða móðgandi orðbragð.
Barnið þitt tekur eftir að siðferðisgildin eru ekki bara reglur heldur það sem fjölskyldan vill vera þekkt fyrir.
Ræddu oft við barnið þitt um siðferðisgildi fjölskyldunnar. Notaðu hversdagslegar aðstæður til að kenna. Þú gætir borið gildi ykkar saman við þau gildi sem sett eru fram í sjónvarpi eða í skólanum. Spyrðu barnið þitt spurninga eins og: „Hvað hefðir þú gert? Hvernig hefði fjölskyldan okkar tekist á við þetta?“
Efldu gott siðferði.
MEGINREGLA: „Hafið góða samvisku.“ – 1. Pétursbréf 3:16.
Hrósaðu fyrir góða hegðun. Þegar barnið þitt breytir vel skaltu hrósa því og útskýra hvers vegna það gerði vel. Þú gætir til dæmis sagt: „Þú varst heiðarlegur. Ég er stoltur af þér.“ Ef barnið þitt viðurkennir að hafa gert eitthvað rangt skaltu hrósa því fyrir að vera heiðarlegt áður en þú leiðréttir það.
Leiðréttu slæma hegðun. Kenndu börnunum að taka ábyrgð á gerðum sínum. Börn þurfa að fá að vita hvað þau gerðu rangt og hvernig breytni þeirra stakk í stúf við gildismat fjölskyldunnar. Sumir foreldrar veigra sér við að leiðrétta barnið vegna þess að þeir vilja ekki að því líði illa út af mistökum sínum. En með því að ræða slæma hegðun við barnið á þennan hátt hjálparðu því að þjálfa samvisku sína til að þekkja muninn á réttu og röngu.