SÖNGUR 79
Kennum þeim að vera staðfastir
1. Gleði sönn í kennslu sýnir sig
er Guðs sauðir þroska ná.
Höfum séð hvernig hann sinnir þeim
er þeir segja honum frá.
(VIÐLAG)
Jehóva, heyrðu hjartans þrá.
Æ, viltu hafa gát þeim á.
Í Jesú nafni biðjum við: Veittu þeim lið
svo trúir verði alla tíð.
2. Dag hvern báðum Guð að blessa þá
þegar baráttan var hörð.
Tíma okkar gáfum ávallt fús,
styrktum andann í Guðs hjörð.
(VIÐLAG)
Jehóva, heyrðu hjartans þrá.
Æ, viltu hafa gát þeim á.
Í Jesú nafni biðjum við: Veittu þeim lið
svo trúir verði alla tíð.
3. Megi staðfastir þeir standa sig,
Guð sinn styðja og hans son.
Og er þreyja þolnir lífsins hlaup
haldi þeir í sigurvon.
(VIÐLAG)
Jehóva, heyrðu hjartans þrá.
Æ, viltu hafa gát þeim á.
Í Jesú nafni biðjum við: Veittu þeim lið
svo trúir verði alla tíð.
(Sjá einnig Lúk. 6:48; Post. 5:42; Fil. 4:1.)