40 NEHEMÍA
Hann endurreisti múrinn
NEHEMÍA bjó í borginni Súsa í Persíu en hugur hans og hjarta var í Jerúsalem, víðs fjarri. Honum þótti ákaflega vænt um borgina því að þar stóð musteri Jehóva. Þjóð Guðs hafði fengið leyfi til að snúa þangað aftur eftir langa útlegð en sönn tilbeiðsla hafði ekki náð að dafna. Borgarmúrarnir lágu í rústum. Borg án múra var varnarlaus á þeim tíma þannig að fáir vildu búa þar.
Nehemía gegndi hárri stöðu hjá Artaxerxesi Persakonungi. Fyrst og fremst var hann þó tryggur þjónn Jehóva. Dag einn kom bróðir hans í heimsókn og flutti honum fréttir frá Jerúsalem. Aðstæður voru skelfilegar! Múrarnir lágu enn í rústum og íbúarnir voru niðurlægðir.
Nehemía var miður sín. Hann skrifaði síðar að hann hefði ‚sest niður og grátið og syrgt dögum saman‘. Hann bað til Jehóva og sárbændi hann um að minnast þjóðar sinnar og hjálpa henni. Síðar, þegar hann færði Artaxerxesi vín, spurði konungur hvers vegna hann væri svona dapur í bragði. Nehemía varð hræddur en hann svaraði þó konunginum og sagði honum frá ástandinu í Jerúsalem. Konungurinn spurði þá hvers hann óskaði. „Ég fór þá strax með bæn til Guðs himnanna,“ skrifaði Nehemía. Síðan bað hann þennan mikla valdhafa um tímabundið leyfi frá störfum til að fara til Jerúsalem og aðstoða við að endurreisa múrana og hliðin. Konungurinn varð við öllum óskum hans.
Nehemía lagði af stað í langa og hættulega ferð til Jerúsalem. Þegar þangað kom fór hann gætilega að öllu og skoðaði rústir múranna að nóttu til. Síðan skipulagði hann verkið og hvatti fólkið til að taka þátt í því. Hann gekk á undan með góðu fordæmi og tók sjálfur til hendinni. Fólkið bretti upp ermarnar, þar á meðal auðugt og valdamikið fólk svo sem gullsmiðir og jafnvel höfðingjar. Einn þeirra vann meira að segja að verkinu með dætrum sínum.
Gyðingar áttu sér marga óvini sem vildu ekki að Jerúsalem yrði örugg og voldug borg. Í fyrstu hæddust þeir að Nehemía og fólkinu. Einn þeirra sagði að múrinn sem þeir voru að reisa myndi hrynja ,ef svo mikið sem refur stigi á hann‘. Nehemía hunsaði þá og hélt áfram að hvetja fólkið til dáða.
Þrátt fyrir háðsglósur, hótanir og hræðsluáróður andstæðinga endurreisti hann múra Jerúsalem.
Andstaðan færðist í aukana. Þegar búið var að reisa múrana til hálfs gerðu óvinirnir sig líklega til að ráðast á Jerúsalem úr öllum áttum. Nehemía gerði ráðstafanir til að verja borgina. Óvinirnir misstu þá dampinn og hættu við að gera beina árás. Þaðan í frá voru Nehemía og helmingur byggingarmanna samt vopnaðir og stóðu vörð en hinn helmingurinn vann að byggingunni. En óvinirnir voru ekki af baki dottnir.
Næsta herbragð var að reyna að telja Nehemía trú um að líf hans væri í hættu og hann yrði að leita skjóls inni í heilögu musteri Jehóva. En það hefði verið brot á lögum Jehóva og Nehemía neitaði að gera það. Hann sagði: „Ætti maður eins og ég að flýja?“ Hann hélt áfram að vinna að verkinu því að hann vissi að Gyðingarnir voru að gera vilja Jehóva og höfðu stuðning hans. Og Jehóva studdi þá sannarlega! Múrinn var fullgerður á aðeins 52 dögum og þeir sem hæddust að Gyðingunum og ofsóttu þá voru auðmýktir.
Nehemía þurfti líka að vera hugrakkur til að leiðbeina fólkinu. Hann þurfti að taka forystuna og hjálpa þjóðinni að þjóna Jehóva á réttan hátt. Hann uppgötvaði meðal annars að auðmenn kúguðu fátæka með því að lána þeim fé gegn háum vöxtum og tók hiklaust á málinu. Nokkrum árum síðar komst hann að því að sumir höfðu óhlýðnast Jehóva með því að taka sér erlendar konur. Hann ávítaði þá hugrakkur og benti þeim á að þeir væru að brjóta lög Guðs.
Einhverju sinni var fólkið niðurdregið vegna mistaka sinna og synda. Nehemía benti þá á mikilvæg sannindi og sagði: „Gleði Jehóva er styrkur ykkar.“ Hann vissi að það var mikill gleðigjafi að þjóna hinum hamingjusama Guði. Enginn múr og ekkert vígi veitir meiri vernd og styrk en þessi gleði. Enn þann dag í dag getur gleðin blásið okkur ósviknu hugrekki í brjóst.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Nehemía hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Hvað fólst í því hlutverki Nehemía að vera drykkjarþjónn konungs? (w10 1.7. 9 gr. 5–7 – wcgr) A
National Museum of Iran, Tehran, Iran/Bridgeman Images
Mynd A: Persnesk lágmynd sem sýnir drykkjarþjón Daríusar mikla, afa Artaxerxesar.
2. Að hvaða leyti voru dætur Sallúms ólíkar framámönnum Tekóa? (Neh. 3:5, 12; w19.10 23 gr. 11)
3. Hvernig gátu burðarmennirnir ‚unnið með annarri hendinni og haldið á vopni í hinni‘? (Neh. 4:17, 18; w06 1.2. 9 gr. 1) B
Mynd B
4. Hvers vegna hafði Nehemía áhyggjur af því að sum af börnum Gyðinga kunnu ekki hebresku? (Neh. 13:23–27; w16.10 14 gr. 4)
Hugleiddu og heimfærðu
Hvernig geta öldungar líkt eftir Nehemía með því að …
reiða sig á Jehóva? (Neh. 1:4–11; 4:14; 13:1–3)
vinna fúslega með bræðrum sínum og systrum? (Neh. 4:15, 21–23)
hlusta á aðra? (Neh. 5:1–7) C
Mynd C
Nehemía fórnaði þægilegu lífi til að geta þjónað Jehóva betur og Jehóva launaði honum fyrir. Hvað lærum við af því?
Á hvaða vegu getur þú sýnt hugrekki eins og Nehemía?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Nehemía þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Hvað getum við lært af Nehemía um mátt bænarinnar?
Í þessu myndbandi sjáum við hvernig Nehemía tókst hugrakkur á við linnulausa andstöðu.
Nehemía: „Gleði Jehóva er styrkur ykkar“ – 1. hluti – útdráttur (5:22)