50 SÁL FRÁ TARSUS
Hann breytti algjörlega um lífsstefnu
Í FYRSTU var Sál frá Tarsus sannfærður um að það hefði verið rétt að grýta Stefán.a Slíkur var trúarhitinn að hann ‚ógnaði lærisveinum Drottins af mikilli heift og hótaði þeim lífláti‘. Hann lét varpa saklausu fólki í fangelsi, bæði körlum og konum. Þegar kristnir menn voru dregnir fyrir rétt greiddi hann því atkvæði að þeir væru teknir af lífi. Hann hleypti af stað mikilli ofsóknaröldu í Jerúsalem og neyddi fjölda kristinna manna til að flýja. En Sál lét ekki þar við sitja. Hann bað æðstaprestinn um bréf sem veitti honum leyfi til að ofsækja kristna menn í Damaskus á sama hátt.
Með bréfin í hendi lagði Sál af stað ásamt félögum sínum norður til þessarar frægu borgar í eyðimörkinni. Hann gerði sér ekki grein fyrir að Jesús var á lífi og sat við hlið föður síns á himnum. Jehóva og sonur hans vissu mætavel hvað Sál hafði fyrir stafni. Þótt ótrúlegt sé sáu þeir samt að það bjó margt gott í honum. Þegar Sál og félagar nálguðust Damaskus leiftraði skyndilega sterkt ljós af himni. Það var „bjartara en ljómi sólar“! Sál féll blindur til jarðar.
Hann heyrði rödd sem kallaði: „Sál, Sál, hvers vegna ofsækirðu mig?“ Röddin ávítaði hann fyrir að vera eins og þjóskt naut sem veldur sjálfu sér meiðslum með því að sparka í stafinn sem eigandinn notar til að ýta við því. „Hver ertu, Drottinn?“ spurði Sál. Honum hlýtur að hafa brugðið að heyra svarið. „Ég er Jesús sem þú ofsækir.“ Jesús sagði honum að standa á fætur og sagði honum síðan hvaða verk hann ætti að vinna. Hann átti að bera vitni og sýna fólki fram á að allt sem Jesús hafði kennt væri satt og rétt. Sál, sem nú var blindur, átti að opna augu vantrúaðra og snúa fólki frá myrkri til ljóssins.
Hvernig gat maður sem ofsótti kristna menn grimmilega snúið við blaðinu og orðið boðberi Krists?
Sýnin mýkti þennan stolta og grimma mann. Sál var enn þá blindur og félagar hans þurftu að leiða hann inn í Damaskus. Þar beið hann þangað til kristinn maður í borginni hafði samband við hann. Sál fastaði í þrjá daga. Það var sannarlega merki um hryggð hans og djúpstæða iðrun. Hann hefur eflaust beðið ákaft og lengi til Jehóva. Hann hafði ofsótt ástkæran son Guðs! Jesús sendi mann sem hét Ananías til Sáls. Ananías fór til hans þótt hann væri ragur við það og lagði hendur yfir hann. Þá „féll af augum hans eitthvað sem líktist hreistri“. Hann fékk sjónina aftur! Sál hafði vitkast og var orðinn auðmjúkur. Hann ‚stóð upp og lét skírast‘.
Nú var Sál orðinn kristinn og hann lét hendur standa fram úr ermum. Hann hefði getað snúið aftur til Jerúsalem en í staðinn gerði hann nokkuð sem honum hlýtur að hafa þótt mjög erfitt. Hann fór í samkundurnar í Damaskus – þar sem flestir hafa eflaust þekkt hann. Hann hefur vafalaust beðið Jehóva um hugrekki. Við getum rétt ímyndað okkur undrun fólks þegar hann sagði að hann hefði haft rangt fyrir sér og væri nú orðinn kristinn. En hann lét ekki þar við sitja. Hann „varð sífellt öflugri og gerði Gyðingana sem bjuggu í Damaskus rökþrota þegar hann sýndi fram á að Jesús væri Kristur“.
Meðan Sál bjó í Damaskus fór hann um tíma til Arabíu, ef til vill út í sýrlensku eyðimörkina sem var á þeim tíma talin til Arabíu. Biblían útskýrir ekki hvers vegna hann gerði það en það er ekki erfitt að sjá hann fyrir sér einan í óbyggðunum að biðjast fyrir og hugleiða það mikla verkefni sem hann átti fram undan. Sál var iðinn biblíunemandi alla ævi. Hann endurnýjaði hugarfarið og breytti um lífsstefnu. Síðar hvatti hann trúsystkini sín í Róm til að gera slíkt hið sama. – Rómv. 12:2.
Sál gleymdi aldrei því hræðilega sem hann hafði gert í fortíðinni. Mörgum árum síðar talaði hann um að hann hefði verið „guðlastari, ósvífinn og ofsótt fólk Guðs“. (1. Tím. 1:13) Hann harmaði að hafa verið því samþykkur að Stefán væri myrtur. (Post. 22:19–21) En Sál var með eitt á hreinu: Jesús og Jehóva höfðu fyrirgefið honum og hann naut blessunar þeirra.
Sál hafði verið kristinn í um það bil þrjú ár þegar hann þurfti að flýja frá Damaskus vegna ofsókna. Hann var látinn síga í körfu út um op í borgarmúrnum og hélt síðan til Jerúsalem. En þjónusta hans sem kristinn maður var rétt að hefjast.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Sál frá Tarsus hugrekki á þessu tímabili ævinnar?
Kafaðu dýpra
1. Hvers vegna gat Sál sagt að Tarsus, heimaborg hans, væri ‚ekki ómerkileg borg‘? (Post. 21:39; w99 15.5. 30 gr. 1 – wcgr) A
Todd Bolen/BiblePlaces.com
Mynd A: Steinlögð gata í rústum fornu borgarinnar Tarsus.
2. Hvers vegna þekkti Sál líklega vel til menningar Gyðinga, Grikkja og Rómverja? (bt bls. 62, rammi gr. 1–3)
3. Hvað átti Sál við þegar hann sagði að Jesús hefði birst sér ‚eins og hann væri fæddur fyrir tímann‘? (1. Kor. 15:8; w22.09 27)
4. Hvað styður frásögn Lúkasar þess efnis að Sál hafi tekið kristna trú í Damaskus? (Post. 9:11, 24, 25; g03 8.2. 24–26 – wcgr) B
Photo by ROLOC Color Slides
Mynd B: Bab-Sharqi-hliðið í Damaskus en þar endar strætið sem kallað var Hið beina.
Hugleiddu og heimfærðu
Sál var auðmjúkur og þáði hjálp Ananíasar og annarra kristinna manna. (Post. 9:17, 18; Kól. 4:10, 11) Við hvaða aðstæður ættum við að þiggja hjálp annarra?
Sál lét hvorki fyrri afrek né fyrri mistök raska einbeitingu sinni í tilbeiðslunni á Jehóva. (Fil. 3:4–8; 1. Tím. 1:12–16) Hvernig getum við líkt eftir honum? C
Mynd C
Á hvaða fleiri vegu getur þú sýnt hugrekki eins og Sál gerði á þessu tímabili?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Hvers vegna geturðu verið þakklátur fyrir að Sál skuli hafa verið valinn til að ríkja með Kristi á himnum, miðað við þessa frásögu?
Skoðaðu meira
Taktu eftir hvað varð til þess að maður sem ofsótti þjóna Guðs eins og Sál breytti um lífsstefnu.
Hvernig getur fordæmi Sáls hjálpað okkur að hafa góðar námsvenjur, vera kærleiksrík og sjá sjálf okkur í réttu ljósi?
„Taktu framförum með því að líkja eftir Páli“ (w08 15.5. 21–25)
a Sál var síðar kallaður Páll en til einföldunar notum við nafnið Sál í þessum kafla.