FJÁRSJÓRÐIR Í ORÐI GUÐS | JOBSBÓK 1-5
Job var ráðvandur í prófraunum
Job bjó í Úslandi á þeim tíma sem Ísraelsmenn voru þrælar í Egyptalandi. Enda þótt Job væri ekki Ísraelsmaður var hann trúr tilbiðjandi Jehóva. Hann átti stóra fjölskyldu, mikinn auð og var áhrifamikill í samfélaginu. Hann var mikils metinn ráðgjafi og óhlutdrægur dómari. Hann var örlátur við fátæka og bágstadda. Job var ráðvandur maður.
Job sýndi greinilega að Jehóva skipti hann mestu máli í lífinu
Satan tók eftir ráðvendni Jobs. Hann neitaði því ekki að Job væri Jehóva hlýðinn en dró hvatir hans í efa.
Satan hélt því fram að Job þjónaði Jehóva af eigingjörnum hvötum.
Til að fá svar við ásökunum Satans leyfði Jehóva Satan að ráðast á þennan trúfasta mann. Satan lagði líf Jobs algerlega í rúst.
Job hélt fast við ráðvendni sína en Satan dró ráðvendi allra manna í efa.
Job syndgaði ekki og ásakaði ekki Guð.