LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Hvað er sönn ást?
Það var ætlun Jehóva að hjónabandið væri varanlegt samband karls og konu. (1Mós 2:22-24) Eina réttmæta ástæðan fyrir skilnaði væri kynferðislegt siðleysi. (Mal 2:16; Matt 19:9) Jehóva vill að hjónabandið færi fólki hamingju og hefur þess vegna gefið kristnum mönnum meginreglur sem geta hjálpað þeim að velja maka af skynsemi og viðhalda hamingju í hjónabandinu. – Préd 5:4-6.
HORFÐU Á KVIKMYNDINA HVAÐ ER SÖNN ÁST? (ekki til á íslensku), OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
Hvers vegna var það bæði viturlegt og kærleiksríkt af Frank og Bonnie að tala um fyrir Liz dóttur sinni?
Hvers vegna er óskynsamlegt að halda að maður geti breytt einstaklingi sem maður er að kynnast með hjónaband í huga?
Hvaða góðu ráð gáfu Paul og Priscilla Liz?
Hvers vegna komu upp erfiðleikar í hjónabandi Zachs og Megan?
Hvað áttu John og Liz sameiginlegt í þjónustu Jehóva?
Hvers vegna ættirðu að kynnast ,hinum hulda manni hjartans‘ hjá tilvonandi maka? (1Pét 3:4)
Hvað er sönn ást? (1Kor 13:4-8)