Fyrri Samúelsbók
7 Íbúar Kirjat Jearím komu og sóttu örk Jehóva. Þeir fluttu örk Jehóva í hús Abínadabs+ uppi á hæðinni og helguðu Eleasar son hans til að gæta hennar.
2 Langur tími leið. Tuttugu ár voru liðin frá þeim degi sem örkin kom til Kirjat Jearím. Þá fóru allir Ísraelsmenn að leita til Jehóva.+ 3 Samúel sagði við Ísraelsmenn: „Ef þið viljið snúa ykkur til Jehóva af öllu hjarta+ losið ykkur þá við útlendu guðina+ og Astörturnar+ og sýnið Jehóva algera hollustu og þjónið honum einum.+ Þá mun hann frelsa ykkur úr greipum Filistea.“+ 4 Ísraelsmenn losuðu sig þá við Baalana og Astörturnar og þjónuðu Jehóva einum.+
5 Samúel sagði: „Safnið saman öllum Ísrael í Mispa+ og ég mun biðja til Jehóva fyrir ykkur.“+ 6 Þeir söfnuðust þá saman í Mispa og sóttu vatn í brunn, helltu því frammi fyrir Jehóva og föstuðu þann dag.+ „Við höfum syndgað gegn Jehóva,“+ sögðu þeir. Og Samúel varð dómari+ Ísraelsmanna í Mispa.
7 Filistear fréttu að Ísraelsmenn hefðu safnast saman í Mispa og höfðingjar þeirra+ fóru þá á móti þeim. Þegar Ísraelsmenn heyrðu það urðu þeir hræddir 8 og sögðu við Samúel: „Hættu ekki að biðja til Jehóva Guðs okkar svo að hann hjálpi okkur+ og bjargi okkur úr greipum Filistea.“ 9 Samúel tók þá ungt lamb og færði Jehóva að brennifórn.+ Hann hrópaði til Jehóva og bað hann að hjálpa Ísraelsmönnum og Jehóva bænheyrði hann.+ 10 Á meðan Samúel færði brennifórnina nálguðust Filistear og voru í þann mund að ráðast á Ísraelsmenn. Þennan dag sendi Jehóva miklar þrumur+ yfir Filistea og olli ringulreið meðal þeirra+ svo að þeir biðu ósigur fyrir Ísraelsmönnum.+ 11 Ísraelsmenn fóru frá Mispa, eltu Filistea og drápu þá, allt þar til þeir voru komnir að svæðinu sunnan við Betkar. 12 Samúel tók síðan stein+ og reisti hann milli Mispa og Jesana. Hann nefndi steininn Ebeneser* og sagði: „Jehóva hefur hjálpað okkur hingað til.“+ 13 Þannig voru Filistear yfirbugaðir og þeir komu ekki framar inn í land Ísraelsmanna.+ Á meðan Samúel lifði var hönd Jehóva gegn Filisteum.+ 14 Ísraelsmenn fengu aftur borgirnar sem Filistear höfðu unnið af þeim, frá Ekron allt til Gat. Þeir endurheimtu einnig landsvæðið í kringum borgirnar úr höndum Filistea.
Friður ríkti auk þess milli Ísraels og Amoríta.+
15 Samúel var dómari í Ísrael til æviloka.+ 16 Á hverju ári ferðaðist hann til Betel,+ Gilgal+ og Mispa+ og dæmdi í málum Ísraels á öllum þessum stöðum. 17 En hann sneri alltaf aftur til Rama+ því að þar átti hann heima. Í Rama dæmdi hann einnig í málum Ísraels og þar reisti hann Jehóva altari.+