-
Lífið er gjöf frá JehóvaVon um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
2. Hvernig getum við sýnt Jehóva að við erum þakklát fyrir lífið?
Jehóva hefur þótt vænt um þig frá því að þú varst getinn. Davíð þjónn Guðs sagði undir innblæstri: „Augu þín sáu mig meðan ég enn var fóstur.“ (Sálmur 139:16) Líf þitt er dýrmætt í augum Jehóva. (Lestu Matteus 10:29–31.) Það myndi særa hann mjög mikið ef einhver tæki vísvitandi líf annars manns, eða sitt eigið líf.a (2. Mósebók 20:13) Það myndi líka særa Jehóva ef við settum líf okkar í óþarfa hættu eða gerðum ekki varúðarráðstafanir til að vernda líf annarra. Þegar við pössum upp á sjálf okkur og virðum líf annarra sýnum við að við erum þakklát fyrir þessa stórkostlegu gjöf.
-
-
Lífið er gjöf frá JehóvaVon um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
5. Berðu virðingu fyrir lífi ófædds barns
Davíð lýsti á ljóðrænan hátt áhuga Jehóva á lífi og þroska barns í móðurkviði. Lesið Sálm 139:13–17 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvort lítur Jehóva svo á að lífið byrji við getnað eða við fæðingu?
Lög Jehóva fyrir Ísraelsmenn til forna vernduðu mæður og ófædd börn þeirra. Lesið 2. Mósebók 21:22, 23 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvað fannst Jehóva um það þegar einhver varð ófæddu barni að bana óviljandi?
Hvað myndi Jehóva finnast ef einhver gerði það viljandi?b
Hvað finnst þér um viðhorf Guðs?
Konu gæti fundist fóstureyðing vera eini kosturinn í stöðunni þó að hún geri sér grein fyrir hve verðmætt lífið er. Lesið Jesaja 41:10 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvert ætti kona að leita ef þrýst er á hana að fara í fóstureyðingu? Hvers vegna?
-
-
Lífið er gjöf frá JehóvaVon um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
b Konur sem hafa farið í fóstureyðingu þurfa ekki að láta bugast af sektarkennd. Jehóva er tilbúinn að fyrirgefa þeim. Nánari upplýsingar er að finna í greininni „Hvað segir Biblían um fóstureyðingar?“ í rammanum „Kannaðu“ í þessum kafla.
-