-
Alheimsréttarhöldin sem þú átt hlut aðVarðturninn – 1989 | 1. janúar
-
-
21. Hvaða spurningar vekur áskorun Jehóva til guða þjóðanna?
21 Því segir Jehóva eins og sé hann að ávarpa dómstól: „Lát alla heiðingjana safnast í einn hóp og þjóðirnar koma saman. . . . Leiði þeir fram votta sína og færi sönnur á mál sitt, svo að menn segi, er þeir heyra það: ‚Það er satt!‘“ (Jesaja 43:9) Þetta er bein áskorun á guði þjóðanna. Getur einhver þeirra sagt framtíðina fyrir? Gat einhver þeirra gert það í fortíðinni? Geta þeir fundið einhvern til að bera vitni með óhrekjandi sönnunargögnum um að slíkir guðir hafi reynst vera sannir og verðugir hollustu? Hvaða orð hafa guðir þjóðanna og fylgjendur þeirra getið sér á okkar tímum? Hefur það verið eitthvað betra en guðir Egypta, Assýringa og Babýloníumanna til forna gátu sér? Geta þeir sem bera vitni um Jehóva lagt fram óhrekjandi sönnunargögn fyrir því að Jehóva sé hinn sanni Guð, sá eini sem er verðugur tilbeiðslu okkar? Greinin á eftir mun fjalla um þessi mál.
-
-
Ætlar þú að vera vottur hins sanna Guðs?Varðturninn – 1989 | 1. janúar
-
-
Áskorun á aðra guði
3. Hvernig skorar Jehóva á alla aðra guði?
3 Jehóva innblés Jesaja að færa í letur áskorun hans til allra annarra guða: „Hver af þeim [guðum þjóðanna] getur kunngjört slíkt [nákvæma spádóma] og látið oss heyra það [sem á að gerast í framtíðinni], er áður er fram komið? Leiði þeir [guðirnir] fram votta sína og færi sönnur á mál sitt, svo að menn [af þjóðunum] segi, er þeir heyra það: ‚Það er satt!‘“ (Jesaja 43:9) Þannig skorar Jehóva á alla þá guði, sem menn dýrka, að sanna að þeir séu guðir. Vottar þeirra skulu leggja fram sönnunargögn fyrir því að guðir þeirra séu áreiðanlegir og verðugir tilbeiðslu.
-