Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Fögnuður þeirra sem ganga í ljósinu
    Varðturninn – 2001 | 1. apríl
    • 2 Með hliðsjón af þessu skiljum við hversu alvarlegt það ástand er sem spámaðurinn Jesaja lýsir. Hann segir: „Sjá, myrkur grúfir yfir jörðinni og sorti yfir þjóðunum.“ (Jesaja 60:2) Hann er auðvitað ekki að tala um bókstaflegt myrkur. Hann er ekki að segja að sól, tungl og stjörnur hætti að skína einn góðan veðurdag. (Sálmur 89:37, 38; 136:7-9) Hann er að tala um andlegt myrkur. En andlegt myrkur er banvænt. Við lifum ekki til lengdar án andlegs ljóss, ekki frekar en við lifum án hins bókstaflega. — Lúkas 1:79.

      3. Hvað eiga kristnir menn að gera með hliðsjón af orðum Jesaja?

      3 Vert er þó að hafa hugfast að orð Jesaja eru að rætast í fyllri mæli núna en gerðist í Júda fortíðar. Heimurinn er hjúpaður andlegu myrkri nú á dögum. Við slíkt hættuástand er andlega ljósið ákaflega þýðingarmikið. Það er því mikilvægt að kristnir menn hlýði hvatningu Jesú um að ‚láta ljós sitt lýsa meðal mannanna.‘ (Matteus 5:16) Sannkristnir menn geta lýst upp myrkrið svo að auðmjúkir menn sjái og fái tækifæri til að hljóta líf. — Jóhannes 8:12.

  • Fögnuður þeirra sem ganga í ljósinu
    Varðturninn – 2001 | 1. apríl
    • 4. Hvenær rættust spádómsorð Jesaja fyrst en hvernig var ástandið orðið meðan hann var uppi?

      4 Orð Jesaja um myrkrið yfir jörðinni rættust fyrst þegar Júda lá í eyði og landsmenn voru í útlegð í Babýlon. En stór hluti þjóðarinnar var hjúpaður andlegu myrkri löngu fyrr, meðan Jesaja var uppi, og það var kveikja þess að hann hvatti samlanda sína og sagði: „Ættmenn Jakobs, komið, göngum í ljósi [Jehóva].“ — Jesaja 2:5; 5:20.

Íslensk rit (1985-2026)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila