-
Jehóva prýðir fólk sitt ljósiVarðturninn – 2002 | 1. ágúst
-
-
12 Kaupmennirnir eru ekki einir á ferð. Hirðar eru einnig á leið til Síonar. Spádómurinn heldur áfram: „Allar hjarðir Kedars safnast til þín, hrútar Nebajóts þjóna þér.“ (Jesaja 60:7a) Hirðingjaættkvíslir eru á leið til borgarinnar helgu til að færa Jehóva það besta úr hjörðum sínum. Þær bjóða jafnvel sjálfar sig fram til þjónustu við Síon. Hvernig tekur Jehóva þessum útlendingum? Hann svarar sjálfur: „Þeir stíga upp á altari mitt mér til þóknunar, og hús dýrðar minnar gjöri ég dýrlegt.“ (Jesaja 60:7b) Jehóva þiggur fórnirnar og þá þjónustu sem útlendingarnir veita. Nærvera þeirra prýðir musteri hans.
-
-
Jehóva prýðir fólk sitt ljósiVarðturninn – 2002 | 1. ágúst
-
-
15. (a) Hvaða aukningu er spáð fyrir um í Jesaja 60:4-9? (b) Hvaða hugarfar sýna sannkristnir menn?
15 Fjórða til níunda vers draga upp ákaflega lifandi mynd af þeim vexti sem hefur átt sér stað um heim allan frá 1919. Af hverju veitti Jehóva Síon þessa aukningu? Af því að frá 1919 hefur Ísrael Guðs hlýtt og endurkastað ljósi hans stöðuglega. En tókstu eftir því að samkvæmt 7. versinu stíga þessir nýkomnu menn ‚upp á altari Guðs‘? Altari er staður þar sem fórnir eru færðar og þessi hluti spádómsins minnir okkur á að hin kristna þjónusta er fórnarstarf. Páll postuli skrifaði: ‚Ég brýni yður að þér bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi.‘ (Rómverjabréfið 12:1) Í samræmi við orð Páls láta sannkristnir menn sér ekki nægja að sækja trúarsamkomur einu sinni í viku heldur gefa þeir af tíma sínum, kröftum og fjármunum til þess að efla hreina tilbeiðslu. Eru þessir dyggu guðsdýrkendur ekki til prýði fyrir hús Jehóva? Spádómur Jesaja sagði að svo myndi vera. Og við getum verið fullviss um að þessir kostgæfu tilbiðjendur Jehóva eru fögur sjón í augum hans.
-