-
Vinnum að því að fegra andlegu paradísinaVarðturninn – 2015 | 15. júlí
-
-
1, 2. Hvað getur orðið „fótskör“ táknað í Hebresku ritningunum?
JEHÓVA GUÐ hefur lýst yfir: „Himinninn er hásæti mitt og jörðin fótskör mín.“ (Jes. 66:1) Hann segist líka ætla að ,skreyta fótskör sína‘. (Jes. 60:13) Hvernig gerir hann það? Og hvað þýðir það fyrir okkur sem búum á „fótskör“ hans?
2 Orðið „fótskör“ táknar stundum jörðina en er auk þess notað í Hebresku ritningunum um musteri Ísraelsmanna til forna. (1. Kron. 28:2; Sálm. 132:7) Musterið var miðstöð sannrar tilbeiðslu á jörð. Af þeirri ástæðu var það mjög fallegt í augum Jehóva og tilvist þess fegraði fótskör hans.
3. Hvað er hið mikla andlega musteri Guðs og hvenær varð það til?
3 Jehóva notar ekki lengur bókstaflegt musteri á jörð sem miðstöð sannrar tilbeiðslu. Hann notar hins vegar andlegt musteri sem er honum til miklu meiri vegsemdar en nokkur bygging. Þetta musteri er fyrirkomulag sem gerir okkur kleift að eiga gott samband við Guð vegna fórnar og prestdóms Jesú Krists. Það varð til árið 29 þegar Jesús var skírður og smurður æðstiprestur í hinu mikla andlega musteri Jehóva. – Hebr. 9:11, 12.
4, 5. (a) Hvernig lýsir 99. sálmurinn einlægri löngun þjóna Jehóva? (b) Að hverju ættum við að spyrja okkur?
4 Við kunnum að meta andlega musterið og lofum því Jehóva með því að kunngera nafn hans og dásama hann fyrir þá miskunn að greiða lausnargjaldið. Hugsa sér að rúmlega átta milljónir sannkristinna manna skuli vegsama Jehóva. Margt trúað fólk heldur ranglega að það muni lofsyngja Guð þegar það kveðji jarðlífið og fari til himna. Allir vottar Jehóva vita hins vegar að þeir þurfa að lofa Guð núna, hér á jörð.
5 Með því að gera það líkjum við eftir trúum þjónum Jehóva sem lýst er í Sálmi 99:1-3, 5. (Lestu.) Eins og gefið er til kynna í þessum sálmi studdu Móse, Aron og Samúel sanna tilbeiðslu í einu og öllu, eins og hún fór fram á þeim tíma. (Sálm. 99:6, 7) Andasmurðir bræður Krists þjóna trúfastir í jarðneskum forgarði hins andlega musteris núna þangað til þeir fara til himna til að gegna prestsþjónustu með Jesú. Milljónir ,annarra sauða‘ styðja þá dyggilega. (Jóh. 10:16) Báðir hóparnir tilbiðja Jehóva í sameiningu hér við fótskör hans þó að þeir hafi ólíka framtíðarvon. Hvert og eitt okkar ætti samt að spyrja sig: Styð ég sanna tilbeiðslu í einu og öllu?
-
-
Vinnum að því að fegra andlegu paradísinaVarðturninn – 2015 | 15. júlí
-
-
7 Árið 1919 var orðið ljóst hverjir höfðu velþóknun Jehóva og þjónuðu honum í andlegu musteri hans. Þeir höfðu verið hreinsaðir trúarlega þannig að þeir þóknuðust Guði enn betur með þjónustu sinni. (Jes. 4:2, 3; Mal. 3:1-4) Það sem Páll postuli hafði séð í sýn öldum áður tók að rætast að vissu marki.
8, 9. Í hvaða þrem myndum birtist ,paradísin‘ sem Páll sá í sýn?
8 Sýn Páls er lýst í 2. Korintubréfi 12:1-4. (Lestu.) Talað er um að þessi yfirnáttúrlega sýn hafi verið opinberun. Hún lýsti ókomnum atburði en ekki neinu sem var til á tímum Páls. Hvaða „Paradís“ var það sem Páll sá þegar hann var „hrifinn burt allt til þriðja himins“? Þessi paradís átti að vera bæði bókstafleg, andleg og himnesk, og verður til í þessum þrem myndum í framtíðinni. Hún getur verið bókstaflega paradísin sem verður á jörðinni. (Lúk. 23:43) Hún getur einnig verið andlega paradísin sem við njótum til fulls í nýja heiminum. Auk þess getur hún verið þær ánægjulegu aðstæður sem ríkja á himnum í „Paradís Guðs“. – Opinb. 2:7.
9 En hvers vegna sagðist Páll hafa heyrt „ósegjanleg orð sem engum manni er leyft að mæla“? Þetta var ekki rétti tíminn til að útskýra í smáatriðum þær dásemdir sem hann hafði séð í sýninni. Á okkar tímum er hins vegar leyfilegt að tala um þær blessanir sem þjónar Guðs búa við.
10. Útskýrðu muninn á „andlegu paradísinni“ og „andlega musterinu“.
10 Orðasambandið „andleg paradís“ er orðið hluti af orðaforða okkar innan safnaðarins. Það lýsir hinu einstaka andlega umhverfi sem gerir okkur kleift að eiga frið við Guð og við trúsystkini okkar. Við megum ekki rugla saman hugtökunum „andleg paradís“ og „andlegt musteri“. Andlega musterið er það fyrirkomulag sem Guð hefur á sannri tilbeiðslu. Andlega paradísin sýnir hins vegar glöggt hverjir hafa velþóknun Guðs og þjóna honum núna í andlega musterinu. – Mal. 3:18.
11. Hvaða verk fáum við að vinna í andlegu paradísinni?
11 Það er hrífandi til þess að hugsa að síðan 1919 hefur Jehóva leyft ófullkomnu fólki að vinna með sér að því að rækta, efla og stækka andlegu paradísina á jörð. Sérðu sjálfan þig fara með hlutverk í þessu einstaka verkefni? Hvetur það þig til að halda áfram að starfa með Jehóva að því að fegra „fótskör“ hans?
-