-
„Eigumst lög við“Spádómur Jesaja — ljós handa öllu mannkyni 1. bindi
-
-
5. Hvers konar tilbeiðsluathafnir hafa Gyðingar í frammi og af hverju eru þær orðnar Jehóva „byrði“?
5 Það er engin furða að Jehóva skuli taka enn dýpra í árinni: „Berið eigi lengur fram fánýtar matfórnir; þær eru mér andstyggilegur fórnarreykur! Tunglkomur, hvíldardagar, hátíðastefnur, — ég fæ eigi þolað að saman fari ranglæti og hátíðaþröng. Sál mín hatar tunglkomur yðar og hátíðir, þær eru orðnar mér byrði, ég er þreyttur orðinn að bera þær.“ (Jesaja 1:13, 14) Lögmál Guðs til Ísraels kveður á um matfórnir, reykelsi, hvíldardaga og hátíðastefnur. Lögmálið tiltekur að halda skuli upp á „tunglkomur,“ og smám saman hafa þróast uppbyggilegar hefðir í kringum þær. (4. Mósebók 10:10; 28:11) Tunglkomudagurinn er mánaðarlegur hvíldardagur og fólk hvílist frá vinnu og safnast jafnvel saman til að fá fræðslu spámanna og presta. (2. Konungabók 4:23; Esekíel 46:3; Amos 8:5) Það er ekkert rangt við það. En menn eru farnir að halda þessa hvíldardaga aðeins til að sýnast. Gyðingar eru jafnvel farnir að stunda andatrú samhliða því að halda lögmál Guðs að forminu til.b Tilbeiðsluathafnir þeirra eru því „byrði“ fyrir Jehóva.
-
-
„Eigumst lög við“Spádómur Jesaja — ljós handa öllu mannkyni 1. bindi
-
-
b Hebreska orðið, sem þýtt er „ranglæti“ í 13. versinu er einnig þýtt „dulræn öfl,“ „það sem er skaðlegt“ og „það sem er dulrænt.“ Orðabókin Theological Dictionary of the Old Testament bendir á að spámenn Hebrea hafi notað orðið til að fordæma „illsku vegna valdníðslu.“
-