Hvaða framtíð bíður jarðar?
„Engin önnur öld jafnast á við þá tuttugustu í taumlausu ofbeldi almennra borgara, í fjölda átaka, flóttamanna og milljóna sem drepnar hafa verið í stríði, og í gríðarlegum útgjöldum til ‚varnarmála,‘“ að sögn ritsins World Military and Social Expenditures 1996. Ætli þetta ástand breytist nokkurn tíma?
Pétur postuli minnti kristna menn á aldagamalt fyrirheit Guðs: „Eftir fyrirheiti hans væntum vér nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem réttlæti býr.“ (2. Pétursbréf 3:13) Þessi orð tilheyrðu upphaflega spádómi Jesaja. (Jesaja 65:17; 66:22) Ísraelsmenn til forna sáu orðin uppfyllast að vissu marki þegar þeir fengu að snúa heim til fyrirheitna landsins eftir 70 ára ánauð í Babýlon. Með því að ítreka fyrirheitið um ‚nýjan himin og nýja jörð‘ benti Pétur á að spádómurinn ætti að uppfyllast í enn stærri mæli — um heim allan!
Það er vilji Guðs að koma á réttlæti um alla jörðina og það verður gert fyrir atbeina ríkis hans á himnum með Krist sem konung. „Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.“ (Jesaja 2:4) Jesús hvatti fylgjendur sína til að vænta þessa algera friðar og öryggis á jörðinni og biðja fyrir því í bæninni sem almennt er kölluð „Faðirvorið.“ hann sagði: „Til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ — matteus 6:9, 10.
Langar þig til að lifa í heimi þar sem ríkir sama réttlæti og á himni? Það er sú von sem Biblían veitir öllum sem leitast af heilu hjarta við að þekkja Guð og lifa í samræmi við réttlátar kröfur hans.