Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Var Jesús að tala um helvíti?
    Varðturninn – 2008 | 15. júní
    • En berum nú orð Jesú saman við síðasta versið í spádómsbók Jesaja.b Er ekki ljóst að Jesús var að vísa í þennan texta í 66. kafla Jesajabókar? Greinilegt er að spámaðurinn talar hér um að fara út „úr Jerúsalem út í aðliggjandi Hinnomsdal (Gehenna) þar sem mannafórnir voru stundaðar fyrrum (Jer. 7:31) en hann var síðan gerður að sorphaugi borgarinnar“. (The Jerome Biblical Commentary) Táknræn merking Jesaja 66:24 er augljóslega ekki sú að fólk líði kvalir enda er talað þar um lík. Það sem deyr ekki eru maðkarnir — en hvorki er minnst á lifandi menn né ódauðlegar sálir. Hvað átti Jesús þá við?

      Í hinu kaþólska ritverki El evangelio de Marcos. Análisis lingüístico y comentario exegético, 2. bindi, segir um Markús 9:48: „Orðalagið er sótt í Jesaja (66,24). Spámaðurinn bendir þar á hvernig lík eyddust að jafnaði, annaðhvort við það að rotna eða brenna . . . Með því að setja maðka og eld hlið við hlið í textanum styrkir hann hugmyndina um eyðingu. . . . Bæði eyðingaröflin eru sögð vera varanleg (‚deyja ekki, slokkna ekki‘): það er hreinlega engrar undankomu auðið. Það eina sem lifir samkvæmt lýsingunni eru maðkarnir og eldurinn — ekki maðurinn — og hvort tveggja eyðir öllu sem það nær til. Því er ekki verið að lýsa eilífum kvölum heldur algerri tortímingu sem kemur í veg fyrir að upprisa eigi sér stað og jafngildir endanlegum dauða. [Eldurinn] táknar því tortímingu.“

  • Var Jesús að tala um helvíti?
    Varðturninn – 2008 | 15. júní
    • b „Þeir munu ganga út og sjá lík þeirra sem risu gegn mér. Hvorki deyja í þeim maðkarnir né slokknar í þeim eldurinn og þeir verða öllum mönnum viðurstyggð.“ — Jes. 66:24.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila