-
„Guð er kærleikur“Varðturninn – 2003 | 1. september
-
-
16. Hvers vegna getum við treyst að Jehóva álíti okkur hrein eftir að hann hefur fyrirgefið syndir okkar?
16 Hefurðu einhvern tíma reynt að ná bletti af ljósri flík? Þú reyndir þitt besta en bletturinn vildi ekki hverfa alveg. Sjáðu hvernig Jehóva lýsir fyrirgefningu sinni: „Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó að þær séu rauðar sem purpuri, skulu þær verða sem ull.“ (Jesaja 1:18) „Skarlat“ lýsir sterkum, rauðum lit og „purpuri“ var sterkur rauðfjólublár litur.a Við getum aldrei afmáð blett syndarinnar af eigin rammleik. En Jehóva getur tekið syndir, sem eru eins og purpuri og skarlat, og gert þær hvítar sem snjó og sem ólitaða ull. Þegar Jehóva fyrirgefur syndir okkar þurfum við ekki að hafa á tilfinningunni að við berum bletti syndarinnar það sem eftir er ævinnar.
-
-
„Guð er kærleikur“Varðturninn – 2003 | 1. september
-
-
a Fræðimaður segir að skarlat hafi verið „litekta. Hvorki dögg, regn, þvottur né langvinn notkun vann á litnum.“
-