Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Jehóva — styrkur okkar
    Varðturninn – 1988 | 1. júní
    • 6, 7. (a) Fyrir hvað ættu dýrkendur Jehóva að mikla hann í samræmi við Jesaja 25:1? (b) Hvernig lýsir Jesaja 25:2, 3 vissri borg? (c) Hvaða borg átti spámaðurinn líklega við og hvers vegna?

      6 Beinum nú athygli okkar að 25. kafla Jesajabókar. Í 1. versinu lesum við: „[Jehóva], þú ert minn Guð! Ég vil vegsama þig, lofa nafn þitt! Þú hefir framkvæmt furðuverk, löngu ráðin ráð, trúfesti og sannleika.“ Dýrkendur Jehóva treysta honum og tigna fyrir þau dásemdarverk sem hann hefur gert þeirra á meðal. En Jesaja stillir nú upp skýrri andstæðu og segir við Jehóva: „Þú hefir gjört bæi að grjóthrúgu, víggirtar borgir að hruninni rúst. Hallir óvinanna eru eigi framar bæir, þær skulu aldrei verða reistar aftur. Þess vegna munu . . . borgir ofríkisfullra þjóða óttast þig.“ — Jesaja 25:2, 3.

  • Jehóva — styrkur okkar
    Varðturninn – 1988 | 1. júní
    • 10. (a) Hvernig hefur ‚borg ofríkisfullra þjóða‘ neyðst til að mikla Jehóva og einnig óttast hann, í samræmi við Jesaja 25:3? (b) Hvernig talar Jesaja um Jehóva í Jesaja 25:4, 5 bæði í tengslum við ‚lítilmagnann‘ og ‚ofríkismennina‘?

      10 Árið 1919 leysti Jehóva sanna þjóna sína undan oki ‚Babýlonar hinnar miklu.‘ Þessi ‚borg ofríkisfullra þjóða‘ neyddist til að vegsama Jehóva með því að hún mátti horfa með beiskju á það „furðuverk“ sem hann vann með því að endurreisa dýrkendur sína til starfa. Áhangendur falskra trúarbragða eru líka neyddir til að óttast Jehóva vegna vitneskjunnar um það sem þeir eiga í vændum. Um aldaraðir hafa ofríkisfullir klerkar hafið sig hátt yfir leikmennina. En núna segir Jesaja um Jehóva: „Þú varst vörn lítilmagnans, vörn hins vesala í nauðum hans, skjól í skúrunum, hlíf í hitanum. Þótt andgustur ofríkismannanna sé eins og kuldaskúrir, glaumkæti óvinanna eins og sólarbreiskja í ofþurrki, þá sefar þú sólarbreiskjuna með skugganum af skýinu og sigursöngur ofríkismannanna hljóðnar.“ — Jesaja 25:4, 5.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila