-
Andlegir drykkjurútar hverjir eru þeir?Varðturninn – 1991 | 1. nóvember
-
-
20, 21. Hvað boða vottar Jehóva án afláts en hvað neita leiðtogar kristna heimsins að gera?
20 Spádómurinn segir um slíka menn: „Hann sem sagði við þá: ‚Þetta er hvíldin — ljáið hinum þreytta hvíld! — Hér er hvíldarstaður.‘ En þeir vildu ekki heyra. Fyrir því mun orð [Jehóva] láta svo í eyrum þeirra: ‚Skipa og skipa, skipa og skipa — skamma og skamma, skamma og skamma — ýmist þetta, ýmist hitt,‘ að þeir steypist aftur á bak og beinbrotni, festist í snörunni og verði teknir.“ — Jesaja 28:12, 13.
-
-
Andlegir drykkjurútar hverjir eru þeir?Varðturninn – 1991 | 1. nóvember
-
-
22. Við hverju varar Jehóva leiðtoga kristna heimsins?
22 Spádómsorð Jesaja vara því klerkana við að Jehóva muni ekki alltaf tala við kristna heiminn fyrir munn meinlausra votta sinna. Bráðlega mun Jehóva láta ‚skipanir sínar og skammir‘ koma til framkvæmda og afleiðingarnar verða stórkostlega skaðvænar fyrir kristna heiminn. Trúarleiðtogar hans og áhangendur munu ‚beinbrotna, festast í snörunni og verða teknir.‘ Já, líkt og Jerúsalem til forna verður trúarkerfum kristna heimsins gereytt. Hvílíkar ófarir! Hvílík óvænt endalok! Og hvílíkar hörmulegar afleiðingar þess að klerkarnir taka andlegan drykkjuskap fram yfir áminningar Jehóva!
-