Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Daníelsbók dregin fyrir rétt
    Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
    • TÝNDI EINVALDURINN

      7. (a) Af hverju voru gagnrýnendur Biblíunnar löngum kátir yfir því að Daníelsbók skyldi tala um Belsasar? (b) Hvernig fór fyrir þeirri hugmynd að Belsasar væri skáldsagnapersóna?

      7 Daníel segir að Belsasar, „sonur“ Nebúkadnesars, hafi verið konungur Babýlonar þegar borgin féll. (Daníel 5:1, 11, 18, 22, 30) Lengi vel gripu gagnrýnendur þetta á lofti því nafnið Belsasar fyrirfannst hvergi annars staðar en í Biblíunni. Fornir sagnaritarar töluðu um Nabónídus, arftaka Nebúkadnesars, sem síðasta konung Babýlonar. Ferdinand Hitzig sagði þess vegna árið 1850 að Belsasar væri augljóslega uppspuni ritarans. En finnst þér það ekki eilítil fljótfærni af Hitzig að álykta svo? Það eitt að þessi konungur er hvergi nefndur sannar nú varla að hann hafi ekki verið til — einkum þegar haft er í huga að söguheimildir frá þessu tímabili eru æði fátæklegar. Árið 1854 fundust nokkur lítil leirkefli í rústum forn-babýlonsku borgarinnar Úr þar sem nú er Suður-Írak. Á þessum fleygrúnakeflum Nabónídusar konungs er meðals annars bæn fyrir „Bel-sar-ussur, elsta syni mínum.“ Jafnvel gagnrýnendur urðu að viðurkenna að þarna væri Belsasar Daníelsbókar fundinn!

      8. Hvernig hefur sú lýsing Daníelsbókar sannast að Belsasar hafi verið konungur?

      8 En gagnrýnendur létu sér ekki segjast. „Þetta sannar ekkert,“ skrifaði einn þeirra, H. F. Talbot að nafni. Hann hélt því fram að sonurinn í áletruninni hefði getað verið barn, en Daníel hefði hins vegar talað um konung er sat að völdum. Aðeins var liðið ár frá því að athugasemdir Talbots birtust þegar fleiri fleygrúnatöflur fundust sem töluðu um ritara Belsasars og þjónustulið á heimili hans. Hann var greinilega ekkert barn! Að lokum gerðu aðrar fleygrúnatöflur út um málið sem skýrðu frá því að Nabónídus hafi stundum verið að heiman frá Babýlon svo árum skipti. Þessar töflur sýndu jafnframt að elsta syni hans (Belsasar) hafi verið „falinn konungdómurinn“ yfir Babýlon. Belsasar var því konungur í reynd að föður sínum fjarstöddum — það er að segja meðstjórnandi föður síns.b

  • Daníelsbók dregin fyrir rétt
    Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
    • b Nabónídus var að heiman þegar Babýlon féll. Belsasar er því réttilega kallaður konungur á þeim tíma. Gagnrýnendur eru með hártoganir og segja að veraldlegar heimildir gefi Belsasar ekki opinberlega titilinn konungur. En fornar heimildir benda til að fólk hafi jafnvel kallað landstjóra konunga á þeim tíma.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila