-
Bjargað úr ljónaginiGefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
-
-
16. (a) Af hverju bar Daríus virðingu fyrir Guði Daníels? (b) Til hvers vonaðist Daríus?
16 Daríusi finnst hann ekki eiga um neitt að velja. Hvorki er hægt að ógilda lögin né gefa Daníel upp sakir fyrir „brot“ hans. Daríus getur einungis sagt Daníel: „Guð þinn, sem þú dýrkar án afláts, frelsi þig!“ Daríus virtist virða Guð Daníels. Það var Jehóva sem hafði gert Daníel færan um að spá falli Babýlonar. Guð hafði einnig gefið honum „frábæran anda“ þannig að hann skaraði fram úr hinum yfirhöfðingjunum. Ef til vill vissi Daríus að þessi sami Guð hafði áratugum áður frelsað þrjá unga Hebrea úr eldsofni. Trúlega vonaðist konungur til að Jehóva myndi frelsa Daníel núna því að ekki gat hann ógilt lögin sem hann hafði undirritað. Daníel var því varpað í ljónagryfjuna.c Því næst var „sóttur steinn og lagður yfir gryfjumunnann, og innsiglaði konungur hann með innsiglishring sínum og með innsiglishringum stórhöfðingja sinna, til þess að sú ráðstöfun, sem gjörð hafði verið við Daníel, skyldi eigi raskast.“ — Daníel 6:17, 18.
-
-
Bjargað úr ljónaginiGefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
-
-
c Ljónagryfjan var hugsanlega neðanjarðarklefi með opi á þakinu. Sennilega voru einnig dyr á klefanum til að hleypa inn dýrum, og lokað fyrir með hurð eða grind.
-