Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • „Konungur norðursins“ á tíma endalokanna
    Varðturninn (námsútgáfa) – 2020 | maí
    • 8. Hver hefur verið konungur suðursins á hinum síðustu dögum?

      8 Í fyrri heimsstyrjöldinni mynduðu Bandaríkin og Bretland öflugt hernaðarbandalag og urðu þá ensk-ameríska heimsveldið. Eins og Daníel spáði fyrir um hafði þessi konungur safnað saman „miklum og illvígum her“. (Dan. 11:25) Á hinum síðustu dögum hefur ensk-ameríska heimsveldið alltaf verið konungur suðursins.c En hver hefur verið konungur norðursins?

      Ensk-ameríska heimsveldið í spádómum Biblíunnar

      Konungi suðursins, ensk-ameríska heimsveldinu, er lýst á nokkra mismunandi vegu í ýmsum biblíuspádómum. Honum er lýst sem ...

      • Fæturnir úr járni og leir.

        fótum úr járni og leir. (Dan. 2:41–43)

      • Höfuð dýrs með horn. Lítið horn með augu og munn sprettur fram meðal hinna hornanna.

        horni sem spratt upp á höfði hræðilegs dýrs. (Dan. 7:7, 8)

      • Villidýr með tíu horn og sjö höfuð.

        sjöunda höfði villidýrs. (Opinb. 13:1)

      • Tvíhyrnt villidýr.

        tvíhyrndu villidýri. (Opinb. 13:11–15)

      • Stjórnarbyggingar sem standa fyrir ensk-ameríska heimsveldið.

        ,falsspámanni‘. (Opinb. 19:20)

      KONUNGUR NORÐURSINS KEMUR Í LJÓS AFTUR

      9. Hvenær kom konungur norðursins í ljós aftur og hvernig rættist það sem segir í Daníel 11:25?

      9 Konungur norðursins kom í ljós aftur 1871, árið eftir að Russell og félagar hans mynduðu biblíunámshópinn. Konungur norðursins var þá Þýskaland. Það ár átti Otto von Bismarck þátt í að stofna Þýska keisaradæmið. Vilhjálmur 1., konungur Prússlands, varð fyrsti keisari þess og hann útnefndi Bismarck fyrsta kanslarann.d Á næstu áratugum varð Þýskaland að nýlenduveldi og það réð yfir ríkjum í Afríku og Kyrrahafinu. Það reyndi að verða valdameira en Bretland. (Lestu Daníel 11:25.) Þýska keisaradæmið byggði upp öflugan her og átti næststærsta sjóher í heimi. Þýskaland sendi herinn gegn óvinum sínum í fyrri heimsstyrjöldinni.

      10. Hvernig rættist það sem segir í Daníel 11:25b, 26?

      10 Daníel sagði síðan fyrir um hvernig myndi fara fyrir Þýska keisaradæminu og hernum sem það hafði byggt upp. Í spádóminum segir að konungur norðursins myndi ,bíða lægri hlut‘. Af hverju myndi hann gera það? „Því að vélabrögðum verður beitt gegn honum. Mötunautar hans munu verða honum að falli.“ (Dan. 11:25b, 26a) Á dögum Daníels voru þeir sem borðuðu „af konungsborði“ meðal annars ráðgjafar konungs „við hirðina“. (Dan. 1:5) Við hverja á spádómurinn hér? Hann á við um háttsetta embættismenn Þýska keisaradæmisins – þar á meðal hershöfðingja og hernaðarráðgjafa keisarans – sem áttu að lokum þátt í að fella keisaradæmið.e Spádómurinn sagði ekki aðeins til um fall keisaradæmisins heldur sagði hann einnig hvernig stríðið við konung suðursins myndi enda. Spádómurinn segir um konung norðursins: „Her hans verður yfirbugaður og mannfallið mikið.“ (Dan. 11:26b) Í fyrri heimsstyrjöldinni var her Þýskalands „yfirbugaður og mannfallið [var] mikið“, rétt eins og spáð var. Þessi styrjöld varð sú mannskæðasta fram að þessum tíma í sögunni.

  • „Konungur norðursins“ á tíma endalokanna
    Varðturninn (námsútgáfa) – 2020 | maí
    • e Þeir flýttu fyrir falli keisaradæmisins á ýmsa vegu. Þeir drógu til dæmis úr stuðningi við keisarann, láku viðkvæmum upplýsingum varðandi stríðið og neyddu keisarann til að segja af sér.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila