Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Mörgum beint til réttlætis
    Varðturninn (námsútgáfa) – 2022 | september
    • 6. Hvað gerist eftir að múgurinn mikli lifir af þrenginguna miklu? Skýrðu svarið. (Sjá einnig „Spurningar frá lesendum“ í þessu blaði varðandi upprisu til lífs á jörð.)

      6 Lestu Daníel 12:2. Hvað gerist eftir að múgurinn mikli kemst í gegnum þessa hörmungatíma? Í þessum spádómi er ekki átt við táknræna upprisu, andlega endurlífgun þjóna Guðs á síðustu dögum, eins og við skildum hann áður.d Hann fjallar um upprisu hinna dánu í hinum komandi nýja heimi. Hvers vegna komumst við að þeirri niðurstöðu? Orðin „í dufti“, eða mold, samsvara orðinu „gröf“ í Job 17:16. Þetta gefur til kynna að í Daníel 12:2 sé átt við bókstaflega upprisu sem á sér stað eftir hina síðustu daga og eftir Harmagedónstríðið.

      7. (a) Hvað þýðir að sumir verða reistir upp „til eilífs lífs“? (b) Í hvaða skilningi er þetta betri upprisa?

      7 En hvað er átt við í Daníel 12:2 þegar sagt er að sumir verði reistir upp „til eilífs lífs“? Það merkir að þeir sem verða reistir upp og kynnast Jehóva og Jesú og halda áfram að kynnast þeim og hlýða á þúsundáratímabilinu munu að lokum fá eilíft líf. (Jóh. 17:3) Þetta verður ,betri upprisa‘ en sumir fengu áður fyrr. (Hebr. 11:35) Hvers vegna? Vegna þess að ófullkomið fólk sem fékk upprisu áður dó aftur.

      8. Í hvaða skilningi fá aðrir upprisu „til lasts og ævarandi smánar“?

      8 En það munu ekki allir sem fá upprisu bregðast vel við fræðslunni sem verður veitt. Spádómur Daníels segir að sumir verði reistir upp „til lasts og ævarandi smánar“. Þar sem þeir sýna uppreisnaranda verða nöfn þeirra ekki skrifuð í bók lífsins. Þeir hljóta ekki eilíft líf heldur ,ævarandi smán‘, þeim verður eytt. Daníel 12:2 talar því um endanlegt hlutskipti þeirra sem fá upprisu en það er háð því sem þeir gera eftir upprisu sína.e (Opinb. 20:12) Sumir hljóta eilíft líf en aðrir ekki.

  • Mörgum beint til réttlætis
    Varðturninn (námsútgáfa) – 2022 | september
    • a Í þessari námsgrein verður fjallað um leiðréttan skilning okkar varðandi það mikla fræðsluátak sem er lýst í Daníel 12:2, 3. Við skoðum hvenær það á sér stað og hverjir taka þátt í því. Við skoðum einnig hvernig þetta fræðsluátak mun undirbúa þá sem verða á jörðinni fyrir lokaprófið í lok þúsundáraríkisins.

  • Mörgum beint til réttlætis
    Varðturninn (námsútgáfa) – 2022 | september
    • d Þetta er leiðréttur skilningur á því sem kemur fram í bókinni Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar, 17. kafla og í Varðturninum 1. nóvember 1987 bls. 28–32.

      e Þegar talað er um „réttláta og rangláta“ í Postulasögunni 24:15 og þá „sem gerðu hið góða“ og þá „sem ástunduðu hið illa“ í Jóhannesi 5:29 er átt við breytni þeirra sem fá upprisu áður en þeir dóu.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila