-
Ræktið með ykkur sanngirniVarðturninn – 1995 | 1. febrúar
-
-
Sveigjanleiki þegar aðstæður breytast
6. Hvernig sýndi Jesús sanngirni í samskiptum við konu af þjóðunum sem átti dóttur haldna illum öndum?
6 Líkt og Jehóva reyndist Jesús skjótur til að breyta um stefnu eða laga sig að nýjum aðstæðum eftir því sem þær komu upp. Einhverju sinni sárbændi kona, sem ekki var Gyðingur, hann að lækna dóttur sína sem kvalin var af illum öndum. Í byrjun gaf Jesús til kynna á þrjá mismunandi vegu að hann ætlaði ekki að hjálpa henni — fyrst með því að ansa henni ekki, síðan með því að segja beint að hann hafi ekki verið sendur til heiðingja heldur Gyðinga, og loks með því að koma með líkingu sem sagði það sama á vinsamlegan hátt. En konan gaf sig ekki sem bar vitni um óvenjusterka trú hennar. Í ljósi þessara óvenjulegu aðstæðna gerði Jesús sér ljóst að þetta var ekki rétti tíminn til að framfylgja almennri reglu heldur vera sveigjanlegur í samræmi við æðri meginreglur.a Eftir það gerði Jesús einmitt það sem hann hafði þrívegis sagt að hann ætlaði ekki. Hann læknaði dóttur konunnar! — Matteus 15:21-28.
-
-
Ræktið með ykkur sanngirniVarðturninn – 1995 | 1. febrúar
-
-
[Mynd á blaðsíðu 15]
Þegar kona sýndi óvenjusterka trú gerði Jesús sér ljóst að það væri ekki staður né stund til að framfylgja almennri reglu.
-