Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Þjónaðu Jehóva með fórnfúsum anda
    Varðturninn – 1993 | 1. nóvember
    • 2. Hvernig brást Pétur við orðum Jesú um væntanlegar þjáningar sínar og hvernig svaraði Jesús?

      2 Jesús á skammt eftir ólifað. En Pétur tekur þessa að því er virðist óhugnanlegu hugmynd óstinnt upp. Hann getur ekki meðtekið að Messías verði í alvöru drepinn. Pétur vogar sér því að setja ofan í við meistara sinn. Sjálfsagt gengur honum gott eitt til er hann andmælir: „Guð náði þig, herra, þetta má aldrei fyrir þig koma.“ En Jesús hafnar þegar í stað mislagðri góðvild Péturs, jafneinarðlega og hann myndi kremja höfuðið á eiturslöngu: „Vík frá mér, Satan, þú ert mér til ásteytingar, þú hugsar ekki um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er.“ — Matteus 16:22, 23.

      3. (a) Hvernig gerði Pétur sig óafvitandi að talsmanni Satans? (b) Hvernig var Pétur ásteytingarsteinn á lífsbraut fórnfýsinnar?

      3 Óafvitandi hefur Pétur gerst talsmaður Satans. Jesús svaraði honum hvasst og jafnákveðið og hann svaraði Satan í eyðimörkinni. Þar reyndi djöfullinn að freista hans til að lifa þægilegu lífi, verða konungur án þess að þjást. (Matteus 4:1-10) Núna hvetur Pétur hann til að vera góður við sjálfan sig. Jesús veit að það er ekki vilji föður hans. Hann verður að lifa fórnfúsu lífi, ekki að þóknast sjálfum sér. (Matteus 20:28) Pétur er orðinn að ásteytingarsteini á slíkri braut; vel meint samúð hans verður að gildru.a Jesús gerir sér þó fulla grein fyrir að ef hann gældi á nokkurn hátt við þá hugmynd að lifa lífinu án fórnfýsi myndi hann glata velþóknun Guðs og falla í gildru Satans þar sem ekkert biði annað en dauðinn.

      4. Hvers vegna vildi Jesús ekki að hann eða fylgjendur hans lifðu til að þóknast sjálfum sér?

      4 Það þurfti því að leiðrétta hugsunarhátt Péturs. Orð hans við Jesú lýstu hugsunarhætti manna, ekki Guðs. Jesús vildi ekki lifa í þægindum og eftirlæti við sjálfan sig og forðast þannig þjáningar með auðveldum hætti, og fylgjendur hans áttu ekki að gera það heldur því að hann hélt áfram og sagði við Pétur og hina lærisveinana: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross [„kvalastaur,“ NW] sinn og fylgi mér.“ — Matteus 16:24.

  • Þjónaðu Jehóva með fórnfúsum anda
    Varðturninn – 1993 | 1. nóvember
    • a Á grískunni var ‚ásteytingarsteinn‘ (σκάνδαλον, skanʹdalon) upphaflega „heiti á þeim hluta gildru sem agnið er sett á og þar af leiðandi gildran eða snaran sjálf. — Vine’s Expository Dictionary of Old and New Testament Words.

Íslensk rit (1985-2026)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila