Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • „Fyrirgefið hver öðrum“
    Varðturninn – 1998 | 1. febrúar
    • 1. (a) Af hverju hélt Pétur kannski að hann væri rausnarlegur þegar hann stakk upp á að fyrirgefa „svo sem sjö sinnum“? (b) Hvað átti Jesús við þegar hann sagði að við ættum að fyrirgefa „sjötíu og sjö sinnum“?

      „HERRA, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum, ef hann misgjörir við mig? Svo sem sjö sinnum?“ (Matteus 18:21) Pétri fannst hann kannski vera býsna rausnarlegur með þessari uppástungu. Samkvæmt rabbínskri hefð átti maður ekki að fyrirgefa sama brot oftar en þrisvar.a Við getum því ímyndað okkur undrun Péturs þegar Jesús svaraði: „Ekki segi ég þér sjö sinnum heldur sjötíu og sjö sinnum.“ (Matteus 18:22, neðanmáls) Að tvítaka töluna sjö jafngilti því að segja „endalaust.“ Jesús áleit að ekki ætti að setja því nein takmörk hve oft kristinn maður ætti að fyrirgefa.

  • „Fyrirgefið hver öðrum“
    Varðturninn – 1998 | 1. febrúar
    • a Samkvæmt Babýlonar-Talmúðinum var ein rabbínahefðin þessi: „Ef maður fremur brot er honum fyrirgefið í fyrsta, annað og þriðja sinn en ekki hið fjórða.“ (Yoma 86b) Þetta byggðist að hluta til á röngum skilningi ritningartexta eins og Amosar 1:3; 2:6 og Jobsbókar 33:29.

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila