Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Uppgjör reikninga fyrir ávöxtun fjármuna Krists
    Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans
    • 1. Hvaða stjórn á ekki við efnahagsvandamál að glíma, og hverjir þurfa að gera upp reikninga við hana?

      NÁNAST undantekningarlaust eiga ríkisstjórnir við efnahagsvanda að etja. Flestar eru skuldum vafðar. Eina undantekningin frá þeirri reglu er „himnaríki“ sem nú er boðað um allar jarðir. (Matteus 25:1) Enn eru eftir á jörðinni í þjónustu þessarar himnesku stjórnar nokkrir verðandi meðlimir hennar. Núna, á mestu örlagatímum mannkynssögunnar, er krafist reikningsskapar af þessum þjónum ‚himnaríkis.‘ Þeir þurfa að gera upp reikninga við stjórnina fyrir það hvernig þeir hafa notað þau verðmæti sem þeim voru falin til umsjónar.

      2. Hvers vegna ættum við að hafa mikinn áhuga á ákveðinni dæmisögu sem Friðarhöfðinginn sagði?

      2 Til að lýsa þessu sagði fremsti fulltrúi þessa ‚himnaríkis‘ endur fyrir löngu dæmisögu eða líkingu. Hún ætti að vekja áhuga okkar núna, því að Friðarhöfðinginn sagði hana sem hluta hins langdræga spádóms um „tákn“ nærveru sinnar sem voldugur konungur. (Matteus 24:3) Afleiðingarnar af uppfyllingu dæmisögunnar snerta okkur mikið því að hún er tengd tilveru okkar og framtíð. Við skulum því skoða þessa spádómlegu dæmisögu sem Friðarhöfðinginn sagði postulum sínum nokkrum dögum áður en honum var fórnað á Golgata. Hún hljóðar svo:

  • Uppgjör reikninga fyrir ávöxtun fjármuna Krists
    Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans
    • 3. Hvað gerðu þjónarnir við talenturnar sem þeir fengu frá húsbónda sínum áður en hann fór úr landi?

      3 „Vakið því, þér vitið ekki daginn né stundina. Svo er um himnaríki sem mann, er ætlaði úr landi. Hann kallaði þjóna sína og fól þeim eigur sínar. Einum fékk hann fimm talentur,a öðrum tvær og þeim þriðja eina, hverjum eftir hæfni. Síðan fór hann úr landi. Sá sem fékk fimm talentur, fór þegar, ávaxtaði þær og græddi aðrar fimm. Eins gjörði sá er tvær fékk. Hann græddi aðrar tvær. En sá sem fékk eina, fór og gróf fé húsbónda síns í jörð og faldi það.

  • Uppgjör reikninga fyrir ávöxtun fjármuna Krists
    Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans
    • 6 Takið af honum talentuna, og fáið þeim, sem hefur tíu talenturnar. Því að hverjum sem hefur, mun gefið verða, og hann mun hafa gnægð, en frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefur. Rekið þennan ónýta þjón út í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.‘“ — Matteus 25:13-30.

Íslensk rit (1985-2026)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila