-
Hvaða framtíð bíður sauðanna og hafranna?Varðturninn – 1996 | 1. febrúar
-
-
Hvaða framtíð bíður hópanna beggja?
16, 17. Hvaða framtíð bíður sauðanna?
16 Jesús felldi dóm sinn yfir sauðunum: „Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims.“ Þetta er hlýlegt boð — „komið“! Hvert? Til eilífs lífs eins og hann sagði í samantekt sinni: „Hinir réttlátu [munu fara] til eilífs lífs.“ — Matteus 25:34, 46.
17 Í dæmisögunni um talenturnar sýndi Jesús fram á hvers væri krafist af þeim sem stjórna með honum á himnum, en í þessari dæmisögu bendir hann á hvers sé vænst af þegnum Guðsríkis. (Matteus 25:14-23) Í stuttu máli er það hugheill stuðningur sauðanna við bræður Krists sem veldur því að þeir erfa stað á jarðneskum vettvangi ríkis hans. Þeir fá að lifa í paradís á jörð — en það er von sem Guð bjó þeim „frá grundvöllun“ þess mannheims sem hægt var að endurleysa. — Lúkas 11:50, 51.
-
-
Hvaða framtíð bíður sauðanna og hafranna?Varðturninn – 1996 | 1. febrúar
-
-
19 Biblíunemendur vita að þetta getur ekki merkt að ódauðlegar sálir manna, sem líkjast höfrum, þjáist í eilífum eldi. Nei, því að menn hafa ekki ódauðlega sál heldur eru sálir. (1. Mósebók 2:7; Prédikarinn 9:5, 10; Esekíel 18:4) Með því að dæma hafrana í ‚eilífan eld‘ á dómarinn við eyðingu þar sem enga framtíðarvon er að finna, sömu endanlegu eyðinguna og djöfullinn og illir andar fá. (Opinberunarbókin 20:10, 14) Dómari Jehóva fellir þannig andstæða dóma. Hann segir sauðunum að ‚koma‘ en höfrunum að ‚fara frá sér.‘ Sauðirnir taka ‚eilíft líf‘ að erfð. Hafrarnir hljóta ‚eilíft afnám.‘ — Matteus 25:46, NW.b
-
-
Hvaða framtíð bíður sauðanna og hafranna?Varðturninn – 1996 | 1. febrúar
-
-
21 En hvað þýðir þessi nýi skilningur á dæmisögunni um sauðina og hafrana fyrir okkur? Fólk er nú þegar byrjað að taka afstöðu. Sumir eru á ‚breiða veginum sem liggur til glötunar‘ en aðrir reyna að halda sig á ‚mjóa veginum er liggur til lífsins.‘ (Matteus 7:13, 14) En tíminn, þegar Jesús fellir lokadóm yfir sauðunum og höfrunum í dæmisögunni, er enn framundan. Þegar Mannssonurinn kemur í dómarahlutverki úrskurðar hann að margir sannkristnir menn — raunar „mikill múgur“ vígðra sauða — séu hæfir til að komast gegnum lokakafla ‚þrengingarinnar miklu‘ inn í nýja heiminn. Sá möguleiki ætti að vera mikið gleðiefni núna. (Opinberunarbókin 7:9, 14) Á hinn bóginn verður mikill fjöldi af ‚öllum þjóðum‘ búinn að sýna sig eins og þrjóska hafra. Þeir munu ‚fara til eilífs afnáms.‘ Hvílíkur léttir fyrir jörðina!
-
-
Hvaða framtíð bíður sauðanna og hafranna?Varðturninn – 1996 | 1. febrúar
-
-
b Bókin El Evangelio de Mateo segir: „Eilíft líf er varanlegt líf; andstæða þess er varanleg refsing. Gríska lýsingarorðið aionios lýsir frekar eðli en tímalengd. Hin varanlega refsing er eilífur dauði.“ — Prófessor Juan Mateos (Biblíustofnun Páfagarðs, Róm) og prófessor Fernando Camacho (Guðfræðistofnun, Sevilla), Madríd, Spáni, 1981.
-