-
Veitum systrum okkar í söfnuðinum stuðningVarðturninn (námsútgáfa) – 2020 | september
-
-
Við getum sýnt trúföstum systrum okkar ást og umhyggju rétt eins og Jesús gerði. (Sjá 6.–9. grein.)e
6. Hvernig hjálpaði Jesús Mörtu og Maríu eins og sjá má af Lúkasi 10:38–42?
6 Jesús varði tíma með systrum sínum í trúnni og hann var sannur vinur þeirra. Tökum sem dæmi vináttu hans við Maríu og Mörtu, en svo virðist sem þær hafi báðar verið einhleypar. (Lestu Lúkas 10:38–42.) Þeim leið augljóslega vel í návist Jesú vegna þess hvernig hann talaði og kom fram við þær. Maríu fannst ekki óþægilegt að sitja við fætur hans eins og lærisveinn.c Og Marta var ófeimin við að segja Jesú hvað henni lá á hjarta þegar systir hennar hjálpaði ekki til við matargerðina. Við þessar óformlegu aðstæður kenndi Jesús þeim báðum mikilvæg sannindi. Og hann sýndi að sér þótti vænt um þessar konur og bróður þeirra Lasarus með því að heimsækja þau líka við önnur tækifæri. (Jóh. 12:1–3) Það kemur því ekki á óvart að María og Marta skyldu leita til Jesú til að fá hjálp þegar Lasarus veiktist alvarlega. – Jóh. 11:3, 5.
-
-
Veitum systrum okkar í söfnuðinum stuðningVarðturninn (námsútgáfa) – 2020 | september
-
-
c Í einu skýringarriti segir: „Lærisveinar sátu við fætur kennara sinna. Lærisveinar sem tóku nám sitt alvarlega bjuggu sig undir það að verða kennarar, en það var staða sem var ekki ætluð konum. Flestir karlmenn meðal Gyðinga hefðu því hneykslast á því að sjá Maríu sitja við fætur Jesú og drekka í sig kennslu hans.“
-