Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • „Hvað er sannleikur?“
    Varðturninn – 1995 | 1. október
    • „Hvað er sannleikur?“

      MENNIRNIR tveir gátu varla ólíkari verið. Annar var tortrygginn, metnaðargjarn og auðugur stjórnmálamaður, reiðubúinn að gera hvað sem var til að koma sér áfram. Hinn var kennari sem hafnaði auði og virðingu og var reiðubúinn að fórna lífi sínu til að bjarga öðrum. Það liggur í augum uppi að þessir tveir menn höfðu ólík sjónarmið. Í einu máli sérstaklega voru þeir algerlega á öndverðum meiði — hvað væri sannleikur.

      Mennirnir voru Pontíus Pílatus og Jesús Kristur. Jesús stóð frammi fyrir Pílatusi sem fordæmdur glæpamaður. Af hverju? Jesús útskýrði að ástæðan fyrir því — og reyndar ástæðan fyrir því að hann kom til jarðar og tókst á hendur þá þjónustu sem hann gerði — væri í rauninni aðeins ein: sannleikur. „Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn,“ sagði hann, „að ég beri sannleikanum vitni.“ — Jóhannes 18:37.

      Pílatus svaraði með mjög svo eftirminnilegri spurningu: „Hvað er sannleikur?“ (Jóhannes 18:38) Vildi hann raunverulega fá svar? Sennilega ekki. Jesús var maður sem gat svarað hvaða spurningu sem hann var spurður í einlægni, en hann svaraði ekki Pílatusi. Og Biblían segir að Pílatus hafi yfirgefið áheyrnarsalinn strax eftir að hann bar spurninguna fram. Rómverski landstjórinn spurði líklega í háðskri vantrú, rétt eins og hann væri að segja: „Sannleikur? Hvað er nú það? Það er enginn sannleikur til!“a

  • „Hvað er sannleikur?“
    Varðturninn – 1995 | 1. október
    • a Samkvæmt biblíufræðingnum R. C. H. Lenski bar „raddblær [Pílatusar] vott um áhugaleysi veraldlegs manns er ætlar sér með spurningu sinni að segja að hvaðeina, sem kallast trúarlegur sannleikur, sé gagnslausar vangaveltur.“

Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila