-
„Söfnuðurinn bjó nú við frið um tíma“Vitnum ítarlega um ríki Guðs
-
-
1, 2. Hvað ætlaði Sál að gera í Damaskus?
MENNIRNIR nálgast Damaskus. Þeir hafa illt í hyggju. Þeir hata lærisveina Jesú og ætla að draga þá út af heimilum þeirra, fjötra þá, auðmýkja og flytja til Jerúsalem. Þar á að leiða þá fyrir Æðstaráðið og refsa þeim.
2 Forsprakki flokksins heitir Sál og hann er nú þegar samsekur í morði.a Fyrir stuttu hafði hann fylgst með öðrum ofstækismönnum Gyðinga grýta Stefán til bana. (Post. 7:57–8:1) Sál lætur sér ekki nægja að ráðast gegn fylgjendum Jesú í Jerúsalem. Hann vill færa út kvíarnar. Hann vill útrýma þessum skaðræðisflokki sem var kallaður ‚Vegurinn‘. – Post. 9:1, 2; sjá rammann „Umboð Sáls í Damaskus“.
-