-
„Ég er hreinn af blóði allra“Vitnum ítarlega um ríki Guðs
-
-
22. Hvers vegna þótti öldungunum í Efesus mjög vænt um Pál?
22 Páll elskaði bræður sína heitt og þess vegna þótti þeim líka ákaflega vænt um hann. Þegar kveðjustundin rann upp fóru allir „að gráta sáran og þeir föðmuðu Pál og kysstu hann ástúðlega“. (Post. 20:37, 38) Við kunnum líka vel að meta þá sem gefa af sjálfum sér í þágu hjarðarinnar eins og Páll, og okkur þykir mjög vænt um þá. Eftir að hafa lesið um fordæmi Páls erum við eflaust sammála um að hann hafi hvorki verið að stæra sig né ýkja þegar hann sagði: „Ég er hreinn af blóði allra.“ – Post. 20:26.
-