-
Allir verða frjálsirVarðturninn – 1999 | 1. maí
-
-
‚Opinberun sona Guðs‘
En Jehóva gaf sköpuninni „von“ þegar hann varpaði henni undir fallvaltleikann, von um að mannkynið myndi síðar meir hljóta frelsi vegna starfa „sona Guðs.“ Hverjir eru þessir ‚synir Guðs‘? Þeir eru lærisveinar Jesú Krists sem eru fæddir í þrælkun syndar og ófullkomleika líkt og „sköpunin“ í heild. Við fæðingu eiga þeir engan rétt á að tilheyra hreinni og fullkominni alheimsfjölskyldu Guðs. En Guð vinnur ótrúlegt miskunnarverk í þeirra þágu. Með lausnarfórn Jesú Krists frelsar hann þá úr fjötrum erfðasyndarinnar og lýsir þá ‚réttláta‘ eða andlega hreina. (1. Korintubréf 6:11) Síðan ættleiðir hann þá sem ‚syni‘ og leiðir þá aftur inn í alheimsfjölskyldu sína. — Rómverjabréfið 8:14-17.
Þessir kjörsynir Jehóva njóta mikilla sérréttinda. Þeir verða ‚prestar Guðs og munu ríkja yfir jörðinni‘ ásamt Jesú Kristi í himnesku ríki eða ríkisstjórn Guðs. (Opinberunarbókin 5:9, 10; 14:1-4) Þessi stjórn er grundvölluð á lögmálum frelsis og réttlætis — ekki kúgunar og harðstjórnar. (Jesaja 9:6, 7; 61:1-4) Páll postuli segir að þessir synir Guðs séu félagar Jesú, hins langþráða ‚afkvæmis Abrahams.‘ (Galatabréfið 3:16, 26, 29) Sem slíkir gegna þeir stóru hlutverki í því að uppfylla fyrirheit sem Guð gaf vini sínum Abraham. Einn þáttur þessa fyrirheits er að ‚allar þjóðir á jörðinni hljóti blessun‘ vegna afkvæmis Abrahams. — 1. Mósebók 22:18.
-
-
Allir verða frjálsirVarðturninn – 1999 | 1. maí
-
-
Hvenær ‚opinberast‘ synir Guðs? Mjög bráðlega þegar hann sýnir öllum ótvírætt hverjir synir sínir séu. Það gerist þegar þessir ‚synir,‘ sem hafa fengið himneska upprisu, vinna með Jesú Kristi að því að hreinsa jörðina af illsku og kúgun í stríði Guðs við Harmagedón. (Daníel 2:44; 7:13, 14, 27; Opinberunarbókin 2:26, 27; 16:16; 17:14; 19:11-21) Við sjáum allt í kringum okkur að það er langt liðið á ‚síðustu daga‘ hins langa tíma sem Guð hefur umborið uppreisn og þá illsku sem af henni hlýst. — 2. Tímóteusarbréf 3:1-5; Matteus 24:3-31.
-
-
Allir verða frjálsirVarðturninn – 1999 | 1. maí
-
-
Meðan þú „bíður opinberunar sona Guðs“ geturðu byggt upp sams konar traust og Páll postuli hafði á vernd, umhyggju og stuðningi Krists, jafnvel í nánast óbærilegum þjáningum og ranglæti. Eftir að Páll hafði rætt um opinberun sona Guðs spurði hann: „Hver mun gjöra oss viðskila við kærleika Krists? Mun þjáning geta það eða þrenging, ofsókn, hungur eða nekt, háski eða sverð?“ (Rómverjabréfið 8:35) Svo notuð séu orð Rousseaus voru kristnir menn á dögum Páls enn ‚í fjötrum‘ kúgunarafla af einu eða öðru tagi. Þeir voru „deyddir allan daginn“ eins og „sláturfé.“ (Rómverjabréfið 8:36) Bugaði það þá?
-