Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Treystu á Jehóva
    Varðturninn – 2003 | 1. október
    • Hvers vegna leyfir Jehóva þjáningar?

      10, 11. (a) Hvað varð um alla sköpunina samkvæmt Rómverjabréfinu 8:19-22? (b) Hvernig er hægt að finna út hver það var sem gerði sköpunina ‚fallvalta‘?

      10 Páll postuli varpar ljósi á þetta mikilvæga mál í bréfi til kristinna manna í Róm. Hann segir: „Sköpunin þráir, að Guðs börn verði opinber. Sköpunin var undirorpin fallvaltleikanum, ekki sjálfviljug, heldur vegna hans, sem varp henni undir hann, í von um að jafnvel sjálf sköpunin muni verða leyst úr ánauð forgengileikans til dýrðarfrelsis Guðs barna. Vér vitum, að öll sköpunin stynur líka og hefur fæðingarhríðir allt til þessa.“ — Rómverjabréfið 8:19-22.

      11 Til að skilja það sem versin segja þurfum við að leita svara við nokkrum mikilvægum spurningum. Hver var það til dæmis sem gerði sköpunina ‚fallvalta‘? Sumir benda á Satan en aðrir á Adam. En hvorugur þeirra gat gert þetta. Hvers vegna? Vegna þess að sá sem varpaði sköpuninni undir ‚fallvaltleikann‘ gerði það „í von“. Já, hann býður fram þá von að trúfastir menn verði um síðir ‚leystir úr ánauð forgengileikans‘. Hvorki Adam né Satan gátu veitt slíka von. Það gat enginn nema Jehóva. Það er því ljóst að það var hann sem gerði sköpunina ‚fallvalta‘.

      12. Hvað halda sumir að „öll sköpunin“ sé en hver er rétta skýringin?

      12 En hvað er átt við þegar talað er um ‚alla sköpun‘ í þessum versum? Sumir segja að „öll sköpunin“ sé allur hinn lifandi heimur, þar á meðal dýra- og jurtaríkið. En vonast dýrin og jurtirnar eftir ‚dýrðarfrelsi Guðs barna‘? Nei. (2. Pétursbréf 2:12) „Öll sköpunin“ getur því aðeins verið mannkynið. Þetta er sú sköpun sem er undirorpin synd og dauða vegna uppreisnarinnar í Eden og sárþarfnast vonar. — Rómverjabréfið 5:12.

      13. Hvað gerði uppreisnin í Eden mannkyninu?

      13 Hvað gerði uppreisnin mannkyninu? Páll lýsir afleiðingum hennar með einu orði: ‚fallvaltleiki‘.a Heimildarrit segir að orðið lýsi „tilgangsleysi hlutar sem virkar ekki eins og hann var gerður til“. Mennirnir voru gerðir til að lifa eilíflega og annast paradís jarðarinnar saman sem fullkomin og sameinuð fjölskylda. En í staðinn er mannlífið stutt, sársaukafullt og oft lítið annað en vonbrigði. „Maðurinn, af konu fæddur, lifir stutta stund og mettast órósemi,“ eins og Job orðaði það. (Jobsbók 14:1) Fallvölt og tilgangslítil tilvera það!

      14, 15. (a) Hvernig vitnar dómur Jehóva yfir mannkyni um réttlæti? (b) Hvers vegna sagði Páll að sköpunin væri ekki undirorpin fallvaltleikanum „sjálfviljug“?

      14 En snúum okkur nú að aðalspurningunni: Hvers vegna gerði „dómari alls jarðríkis“ mannkyninu að búa við þessar þjáningar og raunir? (1. Mósebók 18:25) Var það réttlátt af honum? Höfum hugfast hvað foreldrar mannkyns gerðu. Með uppreisninni gegn Guði tóku þau afstöðu með Satan er hann ögraði drottinvaldi Jehóva. Með verkum sínum tóku þau undir það að maðurinn væri betur settur ef hann stjórnaði sér sjálfur án Jehóva. Hann væri betur settur undir handleiðslu andaveru sem gert hafði uppreisn gegn Guði. Með dómi sínum yfir uppreisnarseggjunum má segja að Jehóva hafi gefið þeim það sem þeir báðu um. Hann leyfði manninum að stjórna sér sjálfur undir áhrifum Satans. Var ekki réttlátast miðað við aðstæður að úrskurða sem svo að mannkynið skyldi undirorpið ‚fallvaltleikanum‘ í von?

      15 Sköpunin gerði þetta auðvitað ekki „sjálfviljug“. Við fæðumst í þrælkun syndar og hrörnunar og eigum ekkert val. En það var miskunn af hálfu Jehóva að leyfa Adam og Evu að lifa um sinn og eignast börn. Þó að við, afkomendur þeirra, séum undirorpin synd og dauða höfum við tækifæri til að gera það sem Adam og Evu mistókst. Við getum hlustað á Jehóva og komist að raun um að drottinvald hans er réttlátt og fullkomið, en stjórn manna óháð Jehóva er tilgangslítil og hefur einungis sársauka og vonbrigði í för með sér. (Jeremía 10:23; Opinberunarbókin 4:11) Og áhrif Satans gera illt verra. Mannkynssagan vitnar um það. — Prédikarinn 8:9.

      16. (a) Hvers vegna getum við treyst að þjáningarnar í heiminum séu ekki Jehóva að kenna? (b) Hvaða von hefur Jehóva í kærleika sínum veitt trúu fólki?

      16 Ljóst er að Jehóva hafði gildar ástæður til að setja mannkynið í þessa stöðu. En þýðir það að Jehóva sé valdur að ‚fallvaltleikanum‘ og þjáningum sem hrjá okkur öll? Tökum dæmi: Hugsum okkur dómara sem fellir réttlátan dóm yfir afbrotamanni. Dómurinn hefur töluverðar þjáningar í för með sér fyrir hinn dæmda en getur hann með réttu sakað dómarann um að hafa valdið þessum þjáningum? Auðvitað ekki. Auk þess er Jehóva aldrei valdur að neinni illsku. Jakobsbréfið 1:13 segir: „Guð getur eigi orðið fyrir freistingu af hinu illa, enda freistar hann sjálfur einskis manns.“ Við skulum líka hafa hugfast að Jehóva felldi dóm sinn „í von“. Hann hefur gert þá kærleiksráðstöfun að trúir afkomendur Adams og Evu sjái ‚fallvaltleikann‘ taka enda og hljóti ‚dýrðarfrelsi Guðs barna‘. Trúfastir menn þurfa aldrei að eilífu að óttast að öll sköpunin komist aftur í þá erfiðu stöðu sem hún er í núna. Með því að taka réttlátlega á málum hefur Jehóva staðfest í eitt skipti fyrir öll að honum ber drottinvaldið með réttu. — Jesaja 25:8.

  • Treystu á Jehóva
    Varðturninn – 2003 | 1. október
    • a Gríska orðið, sem þýtt er ‚fallvaltleiki‘ í bréfi Páls, var notað í grísku Sjötíumannaþýðingunni fyrir orð sem Salómon notar oft í Prédikaranum, til dæmis þar sem segir „allt er hégómi“. — Prédikarinn 1:2, 14; 2:11, 17; 3:19; 12:8.

Íslensk rit (1985-2026)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila