-
Agi sem getur gefið friðsælan ávöxtVarðturninn – 1988 | 1. október
-
-
5, 6. (a) Hvaða viturleg ráð eru okkur gefin um samskipti við þá sem drýgja alvarlega synd og iðrast ekki? (Matteus 18:17) (b) Hvaða spurningum stöndum við frammi fyrir?
5 Þegar maður í Korintu lifðu siðlausu lífi og iðraðist ekki sagði Páll söfnuðinum: „Þér skuluð ekki umgangast nokkurn þann, er nefnir sig bróður, en er saurlífismaður eða ásælinn, skurðgoðadýrkari eða lastmáll, ofdrykkjumaður eða ræningi. Þér skuluð jafnvel ekki sitja að borði með slíkum manni.“ (1. Korintubréf 5:11-13) Frávillingar frá trúnni, svo sem Hýmeneus, áttu að fá sömu meðferð. „Ef einhver veldur klofningi á meðal ykkar skal hann áminntur einu sinni eða tvisvar ef þörf er á. Ef það dugar ekki skuluð þið ekkert hafa saman við hann að sælda eftir það, því að slíkur maður metur hlutina ranglega og syndgar af ásettu ráði.“ (Títusarbréfið 3:10, 11, Lifandi orð; 1. Tímóteusarbréf 1:19, 20) Rétt væri að sneiða einnig hjá hverjum þeim sem hafnaði söfnuðinum: „Þeir komu úr vorum hópi, en heyrðu oss ekki til. Ef þeir hefðu heyrt oss til, þá hefðu þeir áfram verið með oss. En þetta varð til þess að augljóst yrði, að enginn þeirra heyrði oss til.“ — 1. Jóhannesarbréf 2:18, 19.
-
-
Agi sem getur gefið friðsælan ávöxtVarðturninn – 1988 | 1. október
-
-
Skorið á öll tengsl?
7. Hvaða tveim hópum syndara gerum við greinarmun á?
7 Kristnir menn eru ekki fálegir og kuldalegir við fólk. Við höfum eðlileg tengsl við nágranna okkar, vinnufélaga, skólafélaga og aðra og berum vitni fyrir þeim jafnvel þótt sumir séu ‚saurlífismenn, ágjarnir, ræningjar eða skurðgoðadýrkarar.‘ Páll sagði að við gætum ekki forðast þá algerlega ‚því að þá yrðum við að fara út úr heiminum.‘ En samkvæmt fyrirmælum hans gegndi öðru máli með „bróður“ sem hegðaði sér þannig. „Þér skuluð ekki umgangast nokkurn þann, er nefnir sig bróður en [hefur snúið aftur út á slíka vegu]. Þér skuluð jafnvel ekki sitja að borði með slíkum manni.“ — 1. Korintubréf 5:9-11; Markús 2:13-17.
8. Hvað ráðlagði Jóhannes postuli í samband við burtræka?
8 Í ritum Jóhannesar postula finnum við svipuð ráð sem undirstrika hve rækilega kristnir menn eiga að forðast slíka einstaklinga: „Sérhver sem fer of langt og er ekki stöðugur í kenningu Krists, hefur ekki Guð. . . . Ef einhver kemur til yðar og er ekki með þessa kenningu, þá takið hann ekki á heimili yðar og biðjið hann ekki vera velkominn. Því að sá, sem biður hann vera velkominn [á grísku khairo], verður hluttakandi í hans vondu verkum.“a — 2. Jóhannesarbréf 9-11.
9, 10. (a) Hvað var gert við iðrunarlausa lögbrjóta í Ísrael og hvers vegna? (b) Hvað ættum við að láta okkur finnast um núgildandi samskiptareglur við burtræka syndara? (2. Pétursbréf 2:20-22)
9 Hvers vegna er svona einarðleg afstaða viðeigandi enn þann dag í dag? Til að fá svar við því skulum við íhuga hversu alvarlegar aðgerðir var kveðið á um í lögmáli Guðs til Ísraels. Þeir sem gerðust að yfirlögðu ráði sekir um ýmis alvarleg brot voru líflátnir. (3. Mósebók 20:10; 4. Mósebók 15:30, 31) Þegar það gerðist gat enginn, ekki einu sinni ættingjar, talað framar við hinn látna lögbrjót. (3. Mósebók 19:1-4; 5. Mósebók 13:1-5; 17:1-7) Þótt hinir drottinhollu Ísraelsmenn á þeim tíma hafi verið ósköp venjulegir menn með tilfinningar eins og við, vissu þeir að Guð er réttvís og kærleiksríkur og að lögmál hans verndaði siðferðilegan og andlegan hreinleika þeirra. Þeir gátu því viðurkennt að sú ráðstöfun hans að taka lögbrjóta af lífi væri góð og rétt grundvallarregla. — Jobsbók 34:10-12.
10 Við megum vera jafnviss um að sú ráðstöfun Guðs að kristnir menn skuli ekkert samneyti eiga við þann sem gerður hefur verið rækur fyrir syndir sínar og iðrunarleysi sé viturleg og vernd fyrir okkur. „Hreinsið burt gamla súrdeigið, til þess að þér séuð nýtt deig, enda eruð þér ósýrðir.“ (1. Korintubréf 5:7) Með því einnig að forðast menn sem hafa af ásettu ráði sagt sig úr félagi við söfnuðinn eru kristnir menn verndaðir fyrir gagnrýnum og vanþakklátum viðhorfum eða jafnvel fráhvarfshugmyndum sem ella gætu stofnað þeim í hættu. — Hebreabréfið 12:15, 16.
Hvað um ættingja?
11, 12. (a) Hvernig snerti það ættingja syndara í Ísrael til forna þegar hann var líflátinn? (b) Nefndu dæmi um þá blessun sem er hlýðni samfara.
11 Guð gerir sér vissulega ljóst að skyldfólk og ættingjar eiga oft hlut að máli er framfylgja þarf hinum réttlátu lögum hans að eiga engin mök við syndara. Eins og getið var hér á undan voru engin fjölskyldutengsl möguleg framar eftir að lögbrjótur í Ísrael hafði verið líflátinn. Meira að segja ef sonur var svallari og drykkjurútur áttu foreldrar hans að leiða hann fyrir dómarana, og ef hann iðraðist ekki áttu foreldrarnir að taka þátt í lífláti hans til að ‚útrýma hinu illa úr Ísrael.‘ (5. Mósebók 21:18-21) Þú getur rétt ímyndað þér að slíkt hefur ekki verið auðvelt fyrir foreldrana. Gerðu þér líka í hugarlund hvernig bræðrum, systrum, öfum eða ömmum syndarans hefur verið innanbrjósts. Samt sem áður gat það verið lífi þeirra til bjargar að láta hollustu sína við hinn réttláta Guð vera fjölskylduböndunum sterkari.
12 Tökum sem dæmi manninn Kóra sem var forsprakki uppreisnar gegn forystu Jehóva fyrir milligöngu Móse. Í sinni fullkomnu réttvísi sá Jehóva að Kóra þurfti að deyja. En öllum drottinhollum mönnum var ráðlagt þetta: „Víkið burt frá tjöldum þessara óguðlegu manna, og komið ekki nærri neinu því, er þeir eiga, að þér farist eigi vegna allra synda þeirra.“ Ættingjar, sem gátu ekki sætt sig við aðvörun Guðs, dóu með uppreisnarmönnunum. En sumir af ættingjum Kóra tóku þá viturlegu ákvörðun að vera drottinhollir Jehóva. Það bjargaði lífi þeirra og leiddi til blessunar síðar meir. — 4. Mósebók 16:16-33; 26:9-11; 2. Kroníkubók 20:19.
13. Hvað munu drottinhollir kristnir menn gera ef nákominn ættingi er gerður rækur eða aðgreinir sig frá söfnuðinum?
13 Þegar einhver er gerður rækur úr kristna söfnuðinum deyr hann ekki þegar í stað og þess vegna haldast fjölskylduböndin. Maður, sem gerður er rækur eða segir sig úr félagi við söfnuðinn, kann því að búa áfram með kristinni eiginkonu sinni og trúföstum börnum. Virðing fyrir dómum Guðs og aðgerðum safnaðarins fær konuna og börnin til að viðurkenna að með stefnu sinni hefur hann breytt þeim andlegu böndum sem voru milli þeirra. En þótt hann hafi verið gerður rækur rofna ekki við það fjölskyldu- eða hjúskaparböndin og því geta eðlileg samskipti haldið áfram og ástúð innan veggja heimilisins fengið að blómgast sem fyrr.
14. Hvaða boð frá Guði ætti að hafa áhrif á samskipti okkar við burtrækan eða aðgreindan ættingja sem ekki býr undir sama þaki og við?
14 Aðstaðan er önnur ef ættingi, sem hefur verið gerður rækur eða hefur aðgreint sig, býr ekki í innsta hring fjölskyldunnar og á heimilinu. Þá kann að vera hægt að hafa svo til engin samskipti við hann. Jafnvel þótt einhver fjölskyldumál krefjist vissra samskipta ætti svo sannarlega að halda þeim í lágmarki í samræmi við meginreglur Guðs: „Þér skuluð ekki umgangast nokkurn þann, er nefnir sig bróður, en er saurlífismaður eða ásælinn [eða sekur um aðra grófa synd], . . . þér skuluð jafnvel ekki sitja að borði með slíkum manni.“ — 1. Korintubréf 5:11.
15. Hvernig geta ættingjarnir haft stjórn á tilfinningum sínum í slíkum tilvikum? (Sálmur 15:1-5; Markús 10:29, 30)
15 Skiljanlegt er að þetta kunni að vera erfitt vegna fjölskyldubanda og tilfinninga, svo sem ástar afa og ömmu til barnabarna sinna. En hér reynir á hollustu við Guð eins og fram kemur í orðum systurinnar sem vitnað er í á bls. 28. Sá sem finnur til hryggðar og sársauka, er hinn burtræki ættingi hefur valdið, getur leitað hughreystingar og hvatningar í því fordæmi sem sumir af ættingjum Kóra settu. — Sálmur 84:11-13.b
-