-
Hvað er ríki Guðs?Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
7. Lög Guðsríkis eru þau bestu
Ríkisstjórnir setja lög sem er ætlað að vera til gagns og verndar fyrir þegnana. Ríki Guðs hefur líka sett lög sem þegnar þess eiga að fylgja. Lesið 1. Korintubréf 6:9–11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvernig heldurðu að heimurinn verði þegar allir fylgja hegðunarreglum Guðs?a
Finnst þér sanngjarnt af Jehóva að ætlast til þess af þegnum Guðsríkis að virða þessar reglur? Hvers vegna?
Hvernig vitum við að fólk sem hlýðir ekki lögum Guðs getur breytt sér? – Sjá 11. vers.
-
-
Hvað segir Biblían um kynlíf?Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
KAFLI 41
Hvað segir Biblían um kynlíf?
Mörgum finnst vandræðalegt að tala um kynlíf. En þegar Biblían talar um kynlíf gerir hún það blátt áfram og á virðulegan hátt. Það sem hún segir er okkur til góðs, sem er rökrétt því að Jehóva skapaði okkur og veit þess vegna hvað er okkur fyrir bestu. Hann sýnir okkur hvernig við getum þóknast honum með því sem við gerum og hvernig við getum notið lífsins að eilífu.
1. Hvernig lítur Jehóva á kynlíf?
Kynlíf er gjöf frá Jehóva til karls og konu innan hjónabands. Það gerir hjónum ekki aðeins kleift að eignast börn heldur líka að tjá hvort öðru ást sína á eðlilegan og ánægjulegan hátt. Þess vegna segir í Biblíunni: „Gleðstu með eiginkonu æsku þinnar.“ (Orðskviðirnir 5:18, 19) Jehóva ætlast til þess að hjón séu hvort öðru trú og haldi ekki fram hjá. – Lestu Hebreabréfið 13:4.
2. Hvað er kynferðislegt siðleysi?
Biblían segir: „Þeir sem lifa kynferðislega siðlausu lífi … erfa ekki ríki Guðs.“ (1. Korintubréf 6:9, 10) Í Biblíunni er gríska orðið porneiʹa notað um kynferðislegt siðleysi. Það felur í sér (1) kynmöka utan hjónabands, (2) kynmök samkynhneigðra og (3) kynmök við dýr. Þegar við ‚höldum okkur frá kynferðislegu siðleysi‘ er það okkur til gagns og við gleðjum Jehóva. – 1. Þessaloníkubréf 4:3.
KAFAÐU DÝPRA
Skoðaðu hvernig þú getur forðast kynferðislegt siðleysi og hvaða gagn þú hefur af því að halda þér siðferðilega hreinum.
3. Flýðu kynferðislegt siðleysi
Trúfastur maður að nafni Jósef lagði hart að sér til að halda sér siðferðilega hreinum. Lesið 1. Mósebók 39:1–12 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvað fékk Jósef til að flýja? – Sjá 9. vers.
Finnst þér Jósef hafa tekið rétta ákvörðun? Hvers vegna?
Hvernig getur ungt fólk flúið kynferðislegt siðleysi líkt og Jósef? Spilið MYNDBANDIÐ.
Jehóva vill að við höfnum kynferðislegu siðleysi. Lesið 1. Korintubréf 6:18 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvaða aðstæður gætu leitt einhvern út í kynferðislegt siðleysi?
Hvernig geturðu flúið kynferðislegt siðleysi?
4. Þú getur staðist freistingar
Hvað getur gert manni erfitt fyrir að halda sig frá kynferðislegu siðleysi? Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvað gerði bróðirinn í myndbandinu þegar hann áttaði sig á að það sem hann hugsaði og gerði gæti leitt til þess að hann yrði konunni sinni ótrúr?
Jafnvel þeir sem eru trúfastir Jehóva þurfa stundum að berjast við óhreinar hugsanir. Hvernig geturðu stöðvað siðlausar hugsanir? Lesið Filippíbréfið 4:8 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvað ættum við að hugsa um?
Hvernig getur biblíulestur og það að vera upptekin í þjónustu Jehóva hjálpað okkur að standast freistingar til að gera eitthvað rangt?
5. Siðferðisreglur Jehóva eru okkur til góðs
Jehóva veit hvað er okkur fyrir bestu. Hann segir okkur hvernig við getum haldið okkur siðferðilega hreinum og hvaða gagn við höfum af því. Lesið Orðskviðina 7:7–27 eða spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvernig kom ungi maðurinn sér í erfiðar aðstæður? – Sjá Orðskviðina 7:8, 9.
Kynferðislegt siðleysi getur haft alvarlegar afleiðingar eins og kemur fram í Orðskviðunum 7:23, 26. Hvaða erfiðleikum getum við komist hjá með því að halda okkur siðferðilega hreinum?
Hvernig getur siðferðilegur hreinleiki stuðlað að því að við njótum lífsins að eilífu?
Sumum finnst það sem Biblían segir um samkynhneigð vera kærleikslaust. En Jehóva er Guð kærleikans og vill að allir njóti eilífs lífs. Til þess þurfum við að fylgja siðferðisreglum hans. Lesið 1. Korintubréf 6:9–11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Er líferni samkynhneigðra það eina sem er rangt í augum Guðs?
Við þurfum öll að gera einhverjar breytingar til að þóknast Guði. Er það þess virði? Lesið Sálm 19:8, 11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Finnst þér siðferðisreglur Jehóva sanngjarnar? Hvers vegna?
SUMIR SEGJA: „Það er ekkert að því að tveir einstaklingar sem elska hvor annan stundi kynlíf.“
Hvað myndir þú segja við því?
SAMANTEKT
Kynlíf er gjöf frá Jehóva til karls og konu innan hjónabands.
Upprifjun
Hvað er kynferðislegt siðleysi?
Hvað hjálpar okkur að forðast kynferðislegt siðleysi?
Hvernig er það okkur til góðs að fylgja siðferðisreglum Jehóva?
KANNAÐU
Lestu um hvers vegna það skiptir Guð máli að par sem vill búa saman gifti sig.
Kynntu þér hvers vegna viðhorf Biblíunnar til samkynhneigðar ýtir ekki undir hatur.
Lestu um hvernig lög Guðs um kynlíf eru okkur til verndar.
Lestu frásöguna „Þeir sýndu mér virðingu“ til að sjá hvað fékk samkynhneigðan mann til að gera breytingar á lífi sínu til að þóknast Guði.
a Það á við um ýmsar tegundir kynmaka svo sem samfarir, munnmök, endaþarmsmök og að gæla við kynfæri einhvers annars.
-
-
Hvað geturðu gert ef þú drýgir alvarlega synd?Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
-
-
Þó að þú elskir Jehóva heitt og leggir þig fram um að gera ekkert sem særir hann verða þér stundum á mistök. En sumar syndir eru alvarlegri en aðrar. (1. Korintubréf 6:9, 10) Ef þér verður á að drýgja alvarlega synd skaltu muna að Jehóva er ekki hættur að elska þig. Hann er fús til að fyrirgefa þér og hjálpa þér.
1. Hvað þurfum við að gera til að Jehóva fyrirgefi okkur?
Þeim sem elska Jehóva þykir það mjög leitt þegar þeim verður ljóst að þeir hafa drýgt alvarlega synd. En þeir fá hughreystingu í þessu loforði Jehóva: „Þó að syndir ykkar séu skarlatsrauðar skulu þær verða hvítar sem snjór.“ (Jesaja 1:18) Ef við iðrumst einlæglega fyrirgefur Jehóva okkur að fullu. Hvað felur iðrun í sér? Við sjáum virkilega eftir mistökum okkar, hættum að gera það sem er rangt og sárbænum Jehóva að fyrirgefa okkur. Síðan leggjum við hart að okkur að breyta röngu hugarfari eða venjum sem urðu til þess að við syndguðum og reynum að lifa eftir siðferðisreglum Jehóva. – Lestu Jesaja 55:6, 7.
2. Hvernig notar Jehóva öldungana til að hjálpa okkur þegar við syndgum?
Jehóva segir okkur að ‚kalla til okkar öldunga safnaðarins‘ ef við drýgjum alvarlega synd. (Lestu Jakobsbréfið 5:14, 15.) Öldungarnir elska Jehóva og sauði hans. Þeir vita hvernig þeir eiga að hjálpa okkur að endurheimta gott samband við Jehóva. – Galatabréfið 6:1.
Hvernig hjálpa öldungarnir okkur ef við drýgjum alvarlega synd? Tveir eða þrír öldungar nota leiðbeiningar úr Biblíunni til að leiðrétta okkur. Þeir gefa okkur líka hagnýt ráð og hvatningu til að hjálpa okkur að falla ekki aftur í sama farið. Ef einhver drýgir alvarlega synd og iðrast ekki vísa öldungarnir honum úr söfnuðinum svo að hann hafi ekki slæm áhrif á aðra.
KAFAÐU DÝPRA
Dýpkaðu skilning þinn og þakklæti fyrir það hvernig Jehóva hjálpar okkur ef okkur verður á að drýgja alvarlega synd.
3. Það er okkur til góðs að viðurkenna synd okkar
Við særum Jehóva þegar við syndgum. Þess vegna er rétt að við viðurkennum syndir okkar fyrir honum. Lesið Sálm 32:1–5 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvers vegna er betra fyrir okkur að játa syndir okkar fyrir Jehóva heldur en að reyna að leyna þeim?
Þegar við leitum hjálpar öldunganna auk þess að viðurkenna syndir okkar fyrir Jehóva líður okkur betur. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvernig hjálpuðu öldungar Canon að snúa aftur til Jehóva?
Við verðum að vera hreinskilin við öldungana. Þeir vilja hjálpa okkur. Lesið Jakobsbréfið 5:16 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvers vegna er auðveldara fyrir öldungana að hjálpa okkur ef við erum hreinskilin við þá?
4. Jehóva sýnir syndurum miskunn
Þeim sem drýgir alvarlega synd og neitar að fylgja siðferðisreglum Jehóva er vísað úr söfnuðinum og við eigum ekki félagsskap við hann. Lesið 1. Korintubréf 5:6, 11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Súrdeig gerjar brauðdeig. Hvernig hefði það á svipaðan hátt áhrif á allan söfnuðinn að eiga félagsskap við iðrunarlausan syndara?
Öldungar líkja eftir miskunn Jehóva gagnvart ófullkomnum syndurum og leitast við að hjálpa þeim sem hefur verið vísað úr söfnuðinum. Margir hafa komið til baka vegna þess að aginn fékk þá til að ná áttum þó að hann hafi verið sársaukafullur. – Sálmur 141:5.
Hvernig sést að Jehóva er sanngjarn, miskunnsamur og kærleiksríkur á því hvernig hann kemur fram við syndara?
5. Jehóva fyrirgefur okkur þegar við iðrumst
Jesús sagði dæmisögu sem hjálpar okkur að skilja hvernig Jehóva líður þegar einhver iðrast. Lesið Lúkas 15:1–7 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvað segir þetta þér um Jehóva?
Lesið Esekíel 33:11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvað er mikilvægt að gera til að sýna að við iðrumst í einlægni?
SUMIR SEGJA: „Ég er hræddur um að mér verði vísað úr söfnuðinum ef ég segi öldungunum frá því sem ég gerði.“
Hvernig myndir þú svara því?
SAMANTEKT
Jehóva fyrirgefur okkur þó að við drýgjum alvarlega synd ef við iðrumst í einlægni og erum ákveðin í að hætta að gera það sem er rangt.
Upprifjun
Hvers vegna er gott fyrir okkur að játa syndir okkar fyrir Jehóva?
Hvað þurfum við að gera til að Jehóva fyrirgefi okkur?
Hvers vegna ættum við að leita hjálpar öldunganna ef okkur verður á að drýgja alvarlega synd?
KANNAÐU
Sjáðu hvernig maður nokkur kynntist miskunn Jehóva eins og henni er lýst í Jesaja 1:18.
Hvernig reyna öldungarnir að hjálpa þeim sem drýgja alvarlega synd?
„Að sýna þeim sem syndga kærleika og miskunn“ (Varðturninn ágúst 2024)
Sjáðu hvernig iðrunarlausum syndurum er sýndur kærleikur og miskunn.
„Hjálp handa þeim sem er vísað úr söfnuðinum“ (Varðturninn ágúst 2024)
Lestu söguna „Ég varð að snúa aftur til Jehóva“ til að komast að því hvers vegna manni sem lenti á villigötum fannst Jehóva draga sig til sín aftur.
-