Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Hvernig ættum við að líta á áfengi?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • Hvernig ættum við að líta á áfengi?

      Alls staðar í heiminum hefur fólk mismunandi viðhorf til áfengis. Sumir hafa gaman af að fá sér í glas með vinum sínum af og til. Aðrir kjósa að drekka ekki. Enn aðrir drekka sig fulla. Hvert er viðhorf Biblíunnar til áfengis?

      1. Er rangt að drekka áfengi?

      Biblían segir ekki að það sé rangt að drekka áfengi. Hún nefnir meira að segja „vín sem gleður hjarta mannsins“ þegar hún telur upp margar af gjöfum Guðs. (Sálmur 104:14, 15) Sumir trúfastir karlar og konur sem talað er um í Biblíunni drukku áfengi. – 1. Tímóteusarbréf 5:23.

      2. Hvaða ráð gefur Biblían þeim sem velja að drekka áfengi?

      Jehóva fordæmir ofdrykkju og það að drekka sig fullan. (Galatabréfið 5:21) Í orði hans segir: „Vertu ekki í hópi þeirra sem drekka of mikið vín.“ (Orðskviðirnir 23:20) Ef við veljum að drekka, jafnvel í einrúmi, ættum við því ekki að drekka það mikið að við getum ekki hugsað skýrt eða haft stjórn á tali okkar og verkum eða að við stofnum heilsu okkar í hættu. Ef við getum ekki haft stjórn á drykkjunni ættum við að vera tilbúin að hætta alveg að drekka.

      3. Hvernig getum við virt ákvarðanir annarra varðandi áfengi?

      Hver og einn þarf að ákveða hvort hann drekkur áfengi. Við ættum ekki að dæma þann sem velur að drekka áfengi í hófi og við ættum ekki heldur að þrýsta á þann að drekka sem vill það ekki. (Rómverjabréfið 14:10) Við veljum að drekka ekki ef það myndi gera öðrum erfitt fyrir. (Lestu Rómverjabréfið 14:21.) Við hugsum „ekki um eigin hag heldur hag annarra“. – Lestu 1. Korintubréf 10:23, 24.

      KAFAÐU DÝPRA

      Skoðaðu meginreglur í Biblíunni sem geta hjálpað þér að ákveða hvort þú ætlir að drekka og þá hversu mikið. Kynntu þér líka hvað þú getur gert ef þú glímir við drykkjuvandamál.

      4. Ákveddu hvort þú ætlir að drekka áfengi

      Hvernig leit Jesús á það að drekka áfengi? Hugleiddu fyrsta kraftaverkið sem hann vann til að komast að því. Lesið Jóhannes 2:1–11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvað lærum við af þessu kraftaverki um viðhorf Jesú til áfengis og þeirra sem drekka?

      • Hvernig ættum við að líta á þann sem velur að drekka fyrst Jesús fordæmdi ekki neyslu áfengis?

      Þó að við megum drekka áfengi er ekki þar með sagt að það sé alltaf skynsamlegt. Lesið Orðskviðina 22:3 og ræðið síðan hvernig eftirfarandi aðstæður gætu haft áhrif á það hvort þú ætlir að drekka:

      • Þú ert að fara að keyra eða vinna við vélar.

      • Þú ert ófrísk.

      • Læknir hefur ráðlagt þér að drekka ekki áfengi.

      • Þú átt erfitt með að hafa stjórn á því hversu mikið þú drekkur.

      • Lögin leyfa ekki að þú drekkir.

      • Þú ert með einhverjum sem velur að halda sig frá áfengi vegna þess að hann hefur átt erfitt með að stjórna drykkju sinni.

      Ættirðu að bjóða upp á áfengi í brúðkaupum eða öðrum veislum? Spilið MYNDBANDIÐ til að sjá hvað getur hjálpað þér að ákveða það.

      MYNDBAND: Ætti ég að bjóða upp á áfengi? (2:41)

      Lesið Rómverjabréfið 13:13 og 1. Korintubréf 10:31, 32. Ræðið eftirfarandi spurningu eftir hvert vers fyrir sig:

      • Hvernig getur þessi meginregla hjálpað þér að taka ákvörðun sem gleður Jehóva?

      Bróðir afþakkar vín á veitingastað. Tvær systur sem borða með honum drekka vín.

      Hver og einn þarf að ákveða sjálfur hvort hann drekkur áfengi eða ekki. Og þó að hann drekki stundum getur hann líka stundum ákveðið að sleppa því.

      5. Ákveddu hversu mikið þú ætlir að drekka

      Hafðu eftirfarandi í huga ef þú velur að drekka áfengi: Jehóva fordæmir ekki neyslu áfengis en hann fordæmir ofdrykkju. Hvers vegna? Lesið Hósea 4:11, 18 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvað getur gerst ef fólk drekkur of mikið?

      Hvernig getum við varast að drekka of mikið? Við þurfum að vera hógvær, eða meðvituð um takmörk okkar. Lesið Orðskviðina 11:2 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvers vegna er skynsamlegt að setja því ákveðin mörk hve mikið maður drekkur?

      6. Að sigrast á áfengisvanda

      Taktu eftir hvað hjálpaði manni nokkrum að sigrast á áfengisvanda. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      MYNDBAND: „Ég var mjög óhamingjusamur“ (6:32)

      Myndir úr myndbandinu „Ég var mjög óhamingjusamur“. 1. Dmítríj horfir á áfengisflösku. 2. Dmítríj, eiginkona hans og dóttir rannsaka Biblíuna saman.
      • Hvernig hegðaði Dmítríj sér þegar hann drakk?

      • Tókst honum strax að hætta að drekka?

      • Hvernig tókst honum að lokum að sigrast á áfengisfíkninni?

      Lesið 1. Korintubréf 6:10, 11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hversu alvarleg er ofdrykkja?

      • Hvað sýnir að sá sem á við áfengisvanda að glíma getur breytt sér?

      Lesið Matteus 5:30 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Að höggva af sér höndina merkir að færa fórnir til að gleðja Jehóva. Hvað geturðu gert ef þú ert að reyna að sigrast á áfengisfíkn?a

      Lesið 1. Korintubréf 15:33 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvaða áhrif geta vinir þínir haft á það hve mikið þú drekkur?

      EINHVER GÆTI SPURT: „Er rangt að drekka?“

      • Hvernig myndirðu svara því?

      SAMANTEKT

      Jehóva hefur gefið okkur áfengi til að gleðja okkur, en hann fordæmir ofdrykkju og að drekka sig fullan.

      Upprifjun

      • Hvert er viðhorf Biblíunnar til áfengis?

      • Hvaða hættur fylgja því að drekka of mikið?

      • Hvernig getum við virt ákvarðanir annarra varðandi áfengi?

      Markmið

      KANNAÐU

      Hvernig geta unglingar tekið skynsamlegar ákvarðanir varðandi áfengi?

      Hugsaðu áður en þú drekkur áfengi (2:31)

      Lestu um hvernig hægt er að sigrast á áfengisvanda.

      „Höfum rétt viðhorf til áfengis“ (Varðturninn 1. júlí 2010)

      Hvenær og hvernig ættu foreldrar að ræða við börnin um áfengisneyslu?

      „Að tala við börnin um áfengi“ (Vefgrein)

      Lestu söguna ‚Ég var botnlaus tunna‘ til að sjá hvernig maður nokkur sigraðist á ofdrykkju.

      „Biblían breytir lífi fólks“ (Grein úr Varðturninum)

      a Þeir sem eru háðir áfengi gætu þurft á aðstoð fagfólks að halda til að sigrast á fíkninni. Margir læknar mæla með því að þeir sem hafa glímt við áfengisvanda hætti alveg að drekka.

  • Klæðnaður okkar og útlit skiptir máli
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • Kafli 52. Kona ákveður hvaða föt hún eigi að kaupa.

      KAFLI 52

      Klæðnaður okkar og útlit skiptir máli

      Við höfum öll ákveðna skoðun á því hvernig við viljum klæða okkur og líta út. Ef við fylgjum nokkrum einföldum meginreglum úr Biblíunni getum við glatt Jehóva en um leið klætt okkur eftir eigin smekk. Skoðum fáeinar þeirra.

      1. Hvaða meginreglur ættu að stýra klæðavali okkar og útliti?

      Við ættum að velja okkur ‚viðeigandi klæðnað, með hógværð og skynsemi‘ og vera hreinleg svo að við sýnum að við ‚elskum Guð‘. (1. Tímóteusarbréf 2:9, 10) Skoðum þessar fjórar meginreglur: (1) Fötin okkar eiga að vera „viðeigandi“. Eins og þú hefur séð á samkomum hafa vottar Jehóva mismunandi smekk, en klæðaval okkar og hárgreiðslur sýna að við berum virðingu fyrir þeim Guði sem við tilbiðjum. (2) Að klæða sig „með hógværð“ þýðir að vera ekki kynferðislega ögrandi í útliti eða draga of mikla athygli að sjálfum sér. (3) Við sýnum „skynsemi“ með því að fylgja ekki öllum tískubylgjum. (4) Útlit okkar ætti alltaf að endurspegla að við ‚elskum Guð‘ og sýna þannig öðrum að við tilbiðjum hinn sanna Guð. – 1. Korintubréf 10:31.

      2. Hvernig getur útlit okkar haft áhrif á trúsystkini okkar?

      Við ráðum hverju við klæðumst en við ættum samt að hugsa um hvaða áhrif útlit okkar hefur á aðra. Við gerum okkar besta til að móðga engan heldur „gera það sem er náunganum til góðs og styrkir hann“. – Lestu Rómverjabréfið 15:1, 2.

      3. Hvernig getur útlit okkar laðað aðra að sannri tilbeiðslu?

      Við reynum alltaf að klæða okkur á viðeigandi hátt, en þegar við förum á samkomur eða í boðunina viljum við gæta sérstaklega að því. Við viljum ekki draga athyglina frá þeim mikilvæga boðskap sem við berum fólki. Við viljum að útlit okkar laði aðra að sannleikanum og „verði kenningu … frelsara okkar, til lofs“. – Títusarbréfið 2:10.

      KAFAÐU DÝPRA

      Hugleiddu hvernig við getum gengið úr skugga um að föt okkar og útlit hæfi kristnum mönnum.

      Tveir menn standa frammi fyrir dómara. Annar maðurinn er í jakkafötum en hinn er í rifnum hversdagsklæðnaði og með derhúfu.

      Útlit okkar getur gefið til kynna hvort við virðum yfirvald. Þó að Jehóva sjái hvað býr í hjörtum okkar ætti útlit okkar líka að sýna að við virðum hann.

      4. Snyrtilegt útlit sýnir að við berum virðingu fyrir Jehóva

      Hver er mikilvægasta ástæðan fyrir því að huga að útlitinu? Lesið Sálm 47:2 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvaða áhrif ætti það að hafa á klæðaburð okkar að við erum fulltrúar Jehóva?

      • Finnst þér ástæða til að huga að útlitinu þegar við sækjum samkomur og boðum trúna? Hvers vegna?

      5. Að taka góðar ákvarðanir varðandi klæðnað og útlit

      Spilið MYNDBANDIÐ.

      MYNDBAND: „Gerið allt Guði til dýrðar“ (10:18)

      Fötin okkar ættu að vera hrein og hæfa tilefninu, hvort sem þau eru dýr eða ekki. Lesið 1. Korintubréf 10:24 og 1. Tímóteusarbréf 2:9, 10. Ræðið síðan hvers vegna við ættum að forðast að klæða okkur í föt sem eru …

      • sjúskuð eða of hversdagsleg.

      • þröng, sýna of mikið af líkamanum eða eru kynferðislega ögrandi á annan hátt.

      Við erum ekki bundin Móselögunum en þau sýna hvernig Jehóva hugsar. Lesið 5. Mósebók 22:5 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvers vegna ættu karlar ekki að klæða sig eins og konur og konur eins og karlar?

      Lesið 1. Korintubréf 10:32, 33 og 1. Jóhannesarbréf 2:15, 16 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvers vegna ætti það að skipta okkur máli hvort útlit okkar hneykslar fólk í söfnuðinum eða í samfélaginu?

      • Hvernig klæðaburður og útlit er vinsælt þar sem þú býrð?

      • Heldurðu að eitthvað af því gæti verið óviðeigandi fyrir þá sem tilbiðja Jehóva? Hvers vegna?

      Við getum glatt Jehóva þó að við séum með okkar eigin fatasmekk.

      Karlar og konur á ólíkum aldri og af mismunandi þjóðerni er með alls kyns hárgreiðslur og í mismunandi klæðnaði sem hæfir kristnum mönnum.

      SUMIR SEGJA: „Ég á rétt á að klæða mig eins og mér sýnist.“

      • Ert þú á sama máli? Hvers vegna?

      SAMANTEKT

      Þegar við tökum góðar ákvarðanir í sambandi við útlit okkar sýnum við að við virðum Jehóva og aðra.

      Upprifjun

      • Hvers vegna skipta föt okkar og útlit máli fyrir Jehóva?

      • Nefndu nokkrar meginreglur sem geta hjálpað okkur að taka ákvarðanir í sambandi við útlit okkar.

      • Hvernig getur útlit okkar haft áhrif á það hvernig aðrir líta á sanna tilbeiðslu?

      Markmið

      KANNAÐU

      Sjáðu hvaða skilaboð þú gætir verið að senda með fatavali þínu.

      „Hvernig lít ég út?“ (Vefgrein)

      Kynntu þér hvers vegna er gott að hugsa sig vel um áður en maður ákveður hvort maður fær sér húðflúr.

      „Hvað segir Biblían um húðflúr?“ (Vefgrein)

      Skoðaðu meginreglur Biblíunnar sem geta hjálpað þér að hafa jafnvægi varðandi útlit þitt.

      Af hverju hef ég svo miklar áhyggjur af útlitinu? (4:29)

      Hvernig lærði kona sem vildi þóknast Guði að sætta sig við það hvernig aðrir völdu að klæða sig?

      „Klæðnaður og útlit var það sem hindraði mig“ (Grein úr Vaknið!)

Íslensk rit (1985-2026)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila