-
„Hjá lítillátum er viska“Varðturninn – 2000 | 1. september
-
-
Páll — ‚þjónn‘ og ‚ráðsmaður‘
4. Hvaða einstæðra sérréttinda naut Páll?
4 Páll var alkunnur í samfélagi frumkristinna manna sem vonlegt er. Hann ferðaðist þúsundir kílómetra um landveg og sjóveg og stofnaði marga söfnuði. Jehóva veitti honum vitranir og gaf honum þá gáfu að tala erlend tungumál. (1. Korintubréf 14:18; 2. Korintubréf 12:1-5) Hann innblés honum að skrifa 14 bréf sem eru núna hluti af kristnu Grísku ritningunum. Það má ýkjulaust segja að Páll hafi erfiðað meira en allir hinir postularnir. — 1. Korintubréf 15:10.
5. Hvernig sýndi Páll að hann var hógvær í mati á sjálfum sér?
5 Það hefði kannski mátt búast við því að Páll hefði baðað sig í sviðsljósinu og flaggað valdi sínu í ljósi þeirrar forystu sem hann fór með í kristna söfnuðinum. En Páll var lítillátur. Hann kallaði sig ‚sístan postulanna‘ og kvaðst ‚ekki þess verður að kallast postuli með því að hann ofsótti söfnuð Guðs.‘ (1. Korintubréf 15:9) Hann missti aldrei sjónar á því að það var náð Guðs að þakka að hann, fyrrverandi ofsóknari, gat átt samband við Guð, hvað þá að hafa sérstök þjónustusérréttindi. (Jóhannes 6:44; Efesusbréfið 2:8) Þess vegna fannst honum hann ekki vera öðrum fremri þótt þjónusta hans væri einstaklega árangursrík. — 1. Korintubréf 9:16.
6. Hvernig birtist lítillæti Páls í samskiptum við Korintumenn?
6 Lítillæti Páls kemur sérstaklega skýrt fram í samskiptum hans við Korintumenn. Sumir þeirra virðast hafa haft mikið dálæti á þekktum umsjónarmönnum eins og Apollósi, Kefasi og Páli. (1. Korintubréf 1:11-15) En Páll sóttist hvorki eftir lofi Korintumanna né notfærði sér aðdáun þeirra. Hann kom ekki til þeirra „með frábærri mælskusnilld eða speki“ heldur sagði að þeir ættu að líta á hann og félaga hans „sem þjóna Krists og ráðsmenn yfir leyndardómum Guðs.“a — 1. Korintubréf 2:1-5; 4:1.
7. Hvernig sýndi Páll lítillæti þegar hann veitti ráð og leiðbeiningar?
7 Páll sýndi jafnvel lítillæti er hann þurfti að veita strangar áminningar og leiðbeiningar. Hann hélt ekki postulavaldinu á loft heldur fór bónarveg að trúbræðrum sínum „vegna miskunnar Guðs“ og „vegna kærleika.“ (Rómverjabréfið 12:1, 2; Fílemonsbréfið 8, 9) Af hverju gerði hann það? Af því að hann leit á sig sem ‚samverkamann‘ bræðra sinna en ekki sem ‚drottnara yfir trú þeirra.‘ (2. Korintubréf 1:24) Lítillæti hans átti eflaust sinn þátt í því hve elskaður hann var í frumkristna söfnuðinum. — Postulasagan 20:36-38.
-
-
„Hjá lítillátum er viska“Varðturninn – 2000 | 1. september
-
-
a Gríska orðið, sem þýtt er ‚þjónn,‘ er stundum notað um þræla sem sátu í neðri áraröð á galeiðu. „Ráðsmenn“ fengu aftur á móti meiri ábyrgð, til dæmis umsjón með búi. En í augum flestra húsbænda var ráðsmaðurinn ánauðugur ekkert síður en galeiðuþræll.
-