KAFLI 43
Hvernig ættum við að líta á áfengi?
Alls staðar í heiminum hefur fólk mismunandi viðhorf til áfengis. Sumir hafa gaman af að fá sér í glas með vinum sínum af og til. Aðrir kjósa að drekka ekki. Enn aðrir drekka sig fulla. Hvert er viðhorf Biblíunnar til áfengis?
1. Er rangt að drekka áfengi?
Biblían segir ekki að það sé rangt að drekka áfengi. Hún nefnir meira að segja „vín sem gleður hjarta mannsins“ þegar hún telur upp margar af gjöfum Guðs. (Sálmur 104:14, 15) Sumir trúfastir karlar og konur sem talað er um í Biblíunni drukku áfengi. – 1. Tímóteusarbréf 5:23.
2. Hvaða ráð gefur Biblían þeim sem velja að drekka áfengi?
Jehóva fordæmir ofdrykkju og það að drekka sig fullan. (Galatabréfið 5:21) Í orði hans segir: „Vertu ekki í hópi þeirra sem drekka of mikið vín.“ (Orðskviðirnir 23:20) Ef við veljum að drekka, jafnvel í einrúmi, ættum við því ekki að drekka það mikið að við getum ekki hugsað skýrt eða haft stjórn á tali okkar og verkum eða að við stofnum heilsu okkar í hættu. Ef við getum ekki haft stjórn á drykkjunni ættum við að vera tilbúin að hætta alveg að drekka.
3. Hvernig getum við virt ákvarðanir annarra varðandi áfengi?
Hver og einn þarf að ákveða hvort hann drekkur áfengi. Við ættum ekki að dæma þann sem velur að drekka áfengi í hófi og við ættum ekki heldur að þrýsta á þann að drekka sem vill það ekki. (Rómverjabréfið 14:10) Við veljum að drekka ekki ef það myndi gera öðrum erfitt fyrir. (Lestu Rómverjabréfið 14:21.) Við hugsum „ekki um eigin hag heldur hag annarra“. – Lestu 1. Korintubréf 10:23, 24.
KAFAÐU DÝPRA
Skoðaðu meginreglur í Biblíunni sem geta hjálpað þér að ákveða hvort þú ætlir að drekka og þá hversu mikið. Kynntu þér líka hvað þú getur gert ef þú glímir við drykkjuvandamál.
4. Ákveddu hvort þú ætlir að drekka áfengi
Hvernig leit Jesús á það að drekka áfengi? Hugleiddu fyrsta kraftaverkið sem hann vann til að komast að því. Lesið Jóhannes 2:1–11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvað lærum við af þessu kraftaverki um viðhorf Jesú til áfengis og þeirra sem drekka?
Hvernig ættum við að líta á þann sem velur að drekka fyrst Jesús fordæmdi ekki neyslu áfengis?
Þó að við megum drekka áfengi er ekki þar með sagt að það sé alltaf skynsamlegt. Lesið Orðskviðina 22:3 og ræðið síðan hvernig eftirfarandi aðstæður gætu haft áhrif á það hvort þú ætlir að drekka:
Þú ert að fara að keyra eða vinna við vélar.
Þú ert ófrísk.
Læknir hefur ráðlagt þér að drekka ekki áfengi.
Þú átt erfitt með að hafa stjórn á því hversu mikið þú drekkur.
Lögin leyfa ekki að þú drekkir.
Þú ert með einhverjum sem velur að halda sig frá áfengi vegna þess að hann hefur átt erfitt með að stjórna drykkju sinni.
Ættirðu að bjóða upp á áfengi í brúðkaupum eða öðrum veislum? Spilið MYNDBANDIÐ til að sjá hvað getur hjálpað þér að ákveða það.
Lesið Rómverjabréfið 13:13 og 1. Korintubréf 10:31, 32. Ræðið eftirfarandi spurningu eftir hvert vers fyrir sig:
Hvernig getur þessi meginregla hjálpað þér að taka ákvörðun sem gleður Jehóva?
5. Ákveddu hversu mikið þú ætlir að drekka
Hafðu eftirfarandi í huga ef þú velur að drekka áfengi: Jehóva fordæmir ekki neyslu áfengis en hann fordæmir ofdrykkju. Hvers vegna? Lesið Hósea 4:11, 18 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvað getur gerst ef fólk drekkur of mikið?
Hvernig getum við varast að drekka of mikið? Við þurfum að vera hógvær, eða meðvituð um takmörk okkar. Lesið Orðskviðina 11:2 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvers vegna er skynsamlegt að setja því ákveðin mörk hve mikið maður drekkur?
6. Að sigrast á áfengisvanda
Taktu eftir hvað hjálpaði manni nokkrum að sigrast á áfengisvanda. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hvernig hegðaði Dmítríj sér þegar hann drakk?
Tókst honum strax að hætta að drekka?
Hvernig tókst honum að lokum að sigrast á áfengisfíkninni?
Lesið 1. Korintubréf 6:10, 11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Hversu alvarleg er ofdrykkja?
Hvað sýnir að sá sem á við áfengisvanda að glíma getur breytt sér?
Lesið Matteus 5:30 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Að höggva af sér höndina merkir að færa fórnir til að gleðja Jehóva. Hvað geturðu gert ef þú ert að reyna að sigrast á áfengisfíkn?a
Lesið 1. Korintubréf 15:33 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvaða áhrif geta vinir þínir haft á það hve mikið þú drekkur?
EINHVER GÆTI SPURT: „Er rangt að drekka?“
Hvernig myndirðu svara því?
SAMANTEKT
Jehóva hefur gefið okkur áfengi til að gleðja okkur, en hann fordæmir ofdrykkju og að drekka sig fullan.
Upprifjun
Hvert er viðhorf Biblíunnar til áfengis?
Hvaða hættur fylgja því að drekka of mikið?
Hvernig getum við virt ákvarðanir annarra varðandi áfengi?
KANNAÐU
Hvernig geta unglingar tekið skynsamlegar ákvarðanir varðandi áfengi?
Lestu um hvernig hægt er að sigrast á áfengisvanda.
Er í lagi að skála?
Lestu söguna ‚Ég var botnlaus tunna‘ til að sjá hvernig maður nokkur sigraðist á ofdrykkju.
a Þeir sem eru háðir áfengi gætu þurft á aðstoð fagfólks að halda til að sigrast á fíkninni. Margir læknar mæla með því að þeir sem hafa glímt við áfengisvanda hætti alveg að drekka.