-
Sjáðu muninn á fólkiVarðturninn (námsútgáfa) – 2018 | janúar
-
-
3. Hverja er Páll að tala um í 2. Tímóteusarbréfi 3:2-5?
3 „Á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir,“ skrifaði Páll. Síðan telur hann upp 19 miður góð einkenni sem yrðu áberandi í fari fólks á þessu tímabili. Upptalningin er ekki ósvipuð þeirri sem er að finna í Rómverjabréfinu 1:29-31 þó að í Tímóteusarbréfinu komi fyrir hugtök sem finnast ekki annars staðar í Grísku ritningunum. Upptalning Páls hefst með orðunum „menn verða ...“ og vísar auðvitað bæði til karla og kvenna því að bæði kynin geta sýnt af sér þessa lesti. Lýsingin á þó ekki við alla því að þjónar Guðs sýna af sér allt aðra eiginleika. – Lestu Malakí 3:18.
-
-
Sjáðu muninn á fólkiVarðturninn (námsútgáfa) – 2018 | janúar
-
-
4. Lýstu drambsamri manneskju.
4 Samkvæmt upptalningu Páls yrðu margir sérgóðir og fégjarnir en einnig raupsamir, hrokafullir og drambsamir. Fólk, sem er þannig, lítur stórt á sig og finnst það yfir aðra hafið, oft vegna útlits, hæfileika, eigna eða stöðu. Það þráir viðurkenningu og aðdáun. Fræðimaður segir eftirfarandi um þann sem er heltekinn stolti og stærilæti: „Hann er með smá altari í hjartanu þar sem hann krýpur fyrir sjálfum sér.“ Sumir segja að óhóflegt stolt sé svo fráhrindandi að jafnvel hinir stoltu hafi óbeit á því í fari annarra.
-
-
Sjáðu muninn á fólkiVarðturninn (námsútgáfa) – 2018 | janúar
-
-
8. (a) Hvernig er stundum litið á það núna að börn séu óhlýðin foreldrum sínum? (b) Hvað hvetur Biblían börn til að gera?
8 Páll lýsti hvernig fólk myndi koma fram hvert við annað á síðustu dögum. Hann sagði að börn yrðu óhlýðin foreldrum sínum. Í bókum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum er stundum látið sem slík hegðun sé eðlileg og jafnvel ýtt undir hana, en í rauninni veikir hún undirstöður fjölskyldunnar sem er mikilvægasta eining samfélagsins. Það hefur lengi verið viðurkennt. Í Grikklandi til forna var maður sviptur öllum borgaralegum réttindum ef hann sló foreldra sína, og samkvæmt rómverskum lögum jafnaðist það á við morð að slá föður sinn. Bæði Hebresku og Grísku ritningarnar hvetja börn til að heiðra foreldra sína. – 2. Mós. 20:12; Ef. 6:1-3.
-
-
Sjáðu muninn á fólkiVarðturninn (námsútgáfa) – 2018 | janúar
-
-
10, 11. (a) Hvað vitnar um að það vantar mikið upp á náungakærleika í heiminum? (b) Hve langt nær náungakærleikur sannkristinna manna?
10 Páll telur upp fleiri lesti sem vitna um að fólk elskar ekki hvert annað. Hann nefnir vanþakklæti eftir að hafa sagt að börn verði óhlýðin foreldrum. Það er rökrétt vegna þess að þeir sem eru vanþakklátir kunna ekki að meta það góða sem aðrir gera fyrir þá. Menn yrðu líka guðlausir. Þeir yrðu ósáttfúsir og óviljugir að friðmælast við aðra. Páll segir að þeir yrðu illmálgir og sviksamir því að þeir myndu tala illa um og lasta náunga sinn og jafnvel Guð. Auk þess yrðu þeir rógberar því að þeir myndu bera út ósannindi um aðra til að skemma mannorð þeirra.a
-