KAFLI 36
Vertu heiðarlegur í öllu sem þú gerir
Allir vilja eiga vini sem eru heiðarlegir. Jehóva ætlast líka til þess að vinir hans séu heiðarlegir. En það er ekki auðvelt í heimi þar sem svo margir eru óheiðarlegir. Hvaða gagn höfum við af því að vera heiðarleg í öllu sem við gerum?
1. Hver er mikilvægasta ástæðan til að vera heiðarlegur?
Við sýnum Jehóva að við elskum hann og virðum þegar við erum heiðarleg við aðra. Hugleiddu þetta: Jehóva tekur eftir öllu sem við hugsum og gerum. (Hebreabréfið 4:13) Hann sér þegar við veljum að vera heiðarleg og hann kann að meta það. Í orði hans segir: „Jehóva hefur andstyggð á hinum svikula en er náinn vinur hinna réttlátu.“ – Orðskviðirnir 3:32.
2. Hvernig getum við verið heiðarleg í daglega lífinu?
Jehóva vill að við séum „sannorð hvert við annað“. (Sakaría 8:16, 17) Hvað felur það í sér? Við ljúgum hvorki né gefum villandi upplýsingar, hvort sem við erum að tala við einhvern úr fjölskyldunni, vinnufélaga, trúsystkini eða embættismenn. Þeir sem eru heiðarlegir stela ekki frá öðrum eða svindla á þeim. (Lestu Orðskviðina 24:28 og Efesusbréfið 4:28.) Og þeir borga skatta samviskusamlega. (Rómverjabréfið 13:5–7) Við erum ákveðin í að ‚vera heiðarleg í öllu sem við gerum‘. – Hebreabréfið 13:18.
3. Hvernig er heiðarleiki til góðs?
Aðrir treysta okkur ef við erum þekkt fyrir að vera heiðarleg. Við stuðlum að öruggu og heimilislegu andrúmslofti í söfnuðinum. Og við höfum hreina samvisku. Heiðarleiki okkar getur líka verið „kenningu Guðs, frelsara okkar, til lofs“ og laðað aðra að sannri tilbeiðslu. – Títusarbréfið 2:10.
KAFAÐU DÝPRA
Sjáðu hvaða áhrif heiðarleiki þinn hefur á Jehóva og á þig sjálfan og kynntu þér hvernig þú getur verið heiðarlegur á ýmsum sviðum lífsins.
4. Heiðarleiki gleður Jehóva
Lesið Sálm 44:21 og Malakí 3:16 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:
Af hverju er óskynsamlegt að halda að maður geti falið eitthvað fyrir Jehóva?
Hvað heldurðu að Jehóva finnist um það þegar við veljum að segja satt, jafnvel þegar það er erfitt?
5. Vertu alltaf heiðarlegur
Mörgum finnst ekki alltaf skynsamlegt að vera heiðarlegir. En hugleiddu af hverju við ættum alltaf að vera heiðarleg. Spilið MYNDBANDIÐ.
Lesið Hebreabréfið 13:18 og ræðið síðan hvernig við getum verið heiðarleg …
við fjölskylduna.
í vinnunni eða í skólanum.
við aðrar aðstæður.
6. Það er okkur til góðs að vera heiðarleg
Það getur haft í för með sér vissa erfiðleika að vera heiðarlegur. En til langs tíma litið er það alltaf það besta í stöðunni. Lesið Sálm 34:12–16 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:
Hvernig gerir heiðarleiki líf þitt betra?
Heiðarleiki styrkir hjónabandið.
Heiðarlegir starfsmenn ávinna sér traust vinnuveitenda sinna.
Heiðarlegir borgarar eignast gott mannorð hjá embættismönnum.
SUMIR SEGJA: „Sumar lygar eru svo smávægilegar að þær skipta ekki máli.“
Hvers vegna hatar Jehóva allar lygar?
SAMANTEKT
Jehóva vill að vinir sínir séu heiðarlegir í öllu sem þeir segja og gera.
Upprifjun
Hvernig getum við verið heiðarleg?
Hvers vegna er óskynsamlegt að halda að við getum falið eitthvað fyrir Jehóva?
Hvers vegna vilt þú alltaf vera heiðarlegur?
KANNAÐU
Hvernig geta foreldrar kennt börnum sínum heiðarleika?
Hvernig er það okkur til góðs að standa við loforð okkar?
Lestu um hvort við þurfum að borga skatta, jafnvel þegar þeir eru notaðir á rangan hátt.
„Skattar – er nauðsynlegt að greiða þá?“ (Grein úr Varðturninum)
Hvað fékk óheiðarlegan mann til að gera breytingar á lífi sínu og sjá heiðarlega fyrir sér?
„Ég komst að því að Jehóva er miskunnsamur og fús að fyrirgefa“ (Grein úr Varðturninum)