Hjón – leysið vandamál með samræðum og skoðanaskiptum
Fjölskyldan — friðarathvarf?
Vopnin eru orð sem miðað er af óhugnanlegri nákvæmni á veika bletti tilfinningalegra herklæða mótherjans. Í fjölskyldum, þar sem menn hafa lýst hver öðrum opnu stríði á hendur, eru stóryrði, hróp, köll og barsmíðar daglegt brauð, og hlutum er kastað. Sum hjón hafa hins vegar látið af opinni baráttu og dregið sig í hlé bak við múra þagnar, tára og vonbrigða. Í langflestum tilfellum er þessu fólki þó annt um samband sitt hvert við annað. Hvað hindrar að það fái þá hlýju innan fjölskyldunnar sem það þráir svo heitt? Hvernig er hægt að bæta ástandið? Í greinunum á eftir eru gefin raunsæ svör við þessum spurningum.
MARGIR héldu að Jóhanna og Páll byggju í hinu „fullkomna hjónabandi.“ En vinnan hafði altekið athygli Páls. ‚Þegar ég kom heim hafði ég ekki áhuga á að tala um annað en öll hin spennandi og krefjandi verkefni í vinnunni. Þótt ég kyssti og faðmaði Jóhönnu kæruleysislega var hugurinn annars staðar,“ segir Páll. Jóhanna hreifst ekki af áhuga hans fyrir starfinu. Hún hafði nóg um að hugsa sem ung og óreynd móðir, fannst hún vanrækt og sniðgengin. Þetta olli henni sárindum og gremju því að Páll gaf tilfinningum hennar lítinn gaum.
Eftir nokkurt skeið fór Jóhönnu að standa á sama. Þegar Páll úthellti vandamálum sínum fyrir henni brást hún við með kulda og tómlæti. Hún var farin í ‚verkfall‘ tilfinningalega. Það var ekki nóg að hann væri góð fyrirvinna og hún góð móðir. Þau höfðu ekki fullnægt hvort hjá öðru einni af frumþörfum mannsins — þörfinni fyrir innilegt trúnaðarsamband. Þar með höfðu þau rænt hvort annað einhverri fegurstu gjöfinni sem hægt er að gefa maka sínum. Tilfinningalega voru þau orðin eins og ókunnugt fólk, og þessi vöntun á innilegum, gagnkvæmum tjáskiptum var hægt og hægt að eyðileggja hjónaband þeirra.
Ein af þörfum hjartans
Að því er ráðgjafarnir Marcia Lasswell og Norman Lobsenz segja er það að „fá og veita . . . hvoru öðru [tilfinningalegan] stuðning . . . ein af grundvallarathöfnum hjónabandsins.“ Stöðugar atlögur umheimsins valda því að stuðningur þeirra sem við elskum er lífsnauðsynlegur. Að fá hann ekki veldur miklum sársauka og „sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur.“ (Orðskviðirnir 15:13) Ef þennan stuðning vantar getur það eyðilagt sjálfstraust okkar og glaða lund.
Sárindi af völdum þess að maki okkar tekur ekki tillit til tilfinninga okkar geta brotist út í reiði. „Ég missi stjórn á mér þegar hann situr þarna og segir mér að ég sé of viðkvæm,“ segir eiginkona. „Það endar alltaf með því að ég fer að gráta og líður ömurlega.“ Páll lét í ljós svipaðar tilfinningar: ‚Ég veitti því athygli að Jóhanna var alltaf dauf í dálkinn þegar við vorum ein, en strax og einhver hringdi eða kom í heimsókn var hún glöð og áköf en lét eins og ég væri ekki til. Ég var í senn særður og reiður því að mér fannst hún misnota mig. Ég sá fyrir henni en samt hegðaði hún sér eins og hún vildi heldur vera í félagsskap annarra.‘
Sum hjón fara þá leið að þjást þegjandi en láta gagnvart öðrum líta svo út sem hjónaband þeirra sé betra en nokkru sinni fyrr. En líkaminn tekur út fyrir það sem heilinn kýs að horfa fram hjá. Fólk með óleyst hjúskaparvandamál segir lækninum sínum frá langvinnum verkjum, höfuðverk, meltingartruflunum, þunglyndi, kynkulda og getuleysi til kynmaka. Oft magnast svo kali og óvild hjóna í milli að þau slíta að lokum samvistum. Að mati sérfræðinga má búast við að helmingur þeirra sem ganga í sitt fyrsta hjónaband um þessar mundir í Bandaríkjunum, eigi eftir að slíta því.
En hvað er hægt að gera til að leysa vandamál og rækta innilegt trúnaðarsamband hjóna í milli? Leyndardómurinn er fólginn í því að fylgja meginreglum Biblíunnar. Guð, sem skapaði mannshjartað og mannshugann, þekkir tilfinningalegar þarfir okkar. Þess vegna finnum við í Biblíunni, sem geymir orð hans, bestu leiðbeiningarnar. Hjónum nægir ekki aðeins að þekkja hinar innblásnu leiðbeiningar; þau verða líka að reyna í einlægni að fara eftir þeim. Ef Biblíunni er fylgt getur hún hjálpað hjónum að fullnægja tilfinningalegum þörfum hvors annars. — Efesusbréfið 5:22-33.
„Ég veit ekki hvað hún vill“
Oft er erfitt að gera sér grein fyrir tilfinningalegum þörfum maka síns. Sumir eru hikandi við að segja maka sínum frá þeim í smáatriðum, af ótta við að verða særðir enn frekar, valdið vonbrigðum eða hafnað — eða þá af því að þeir þekkja ekki tilfinningalegar þarfir sjálfra sín. „Ég segi það satt að ég veit ekki hvað hún vill,“ segir eiginmaður. „Hún stagast á því að við þurfum að tala saman, og þegar við gerum það, segi ég alltaf eitthvað rangt. . . . Það kemur mér í slæmt skap svo ég læt það vera að segja nokkurn skapaðan hlut.“
Biblían sýnir okkur að við þurfum, í stað þess að steinþagna eins og þessi eiginmaður, að sýna hyggindi og góða dómgreind. „Fyrir speki verður hús reist, og fyrir hyggni verður það staðfast,“ segja Orðskviðirnir 24:3. Reyndu því að koma auga á hvað býr að baki orðum eða athöfnum maka þíns. Spyrðu þig: Hvers vegna segir hann/hún mér þetta? Hvað vill hann/hún eða þarfnast innst inni?
Stundum getur kona gert mann sinn ráðvilltan með hvikulum tilfinningum sínum. En „geðrór maður er skynsamur“ og reynir að draga fram í hverju vandinn raunverulega er fólginn. (Orðskviðirnir 17:27; 20:5) Er hún að berjast gegn einhverju þjakandi tilfinningaálagi? (Samanber Prédikarann 7:7.) Er reiði hennar yfir því að þú skulir koma seint heim úr vinnu í rauninni neyðarkall vegna afskiptaleysis þíns eða vöntunar á hlýju? Hefur þú kannski sært hana með einhverju hugsunarleysi? Þarf sérstaka viðleitni — og tíma — af þinni hálfu til að koma öllu í samt lag aftur? Það að koma auga á þörfina er þó aðeins fyrsta skrefið. — Orðskviðirnir 12:18; 18:19.
Byggt upp náið samband
Biblían hefur eftir Job að orð hans myndu styrkja þann sem á hlýddi. (Jobsbók 16:5) Sú regla á einnig við í hjónabandi. Einlægt hrós eykur sjálfsvirðingu maka þíns og styrkir hjónabandið. „Þér eiginmenn,“ býður Biblían, „búið með skynsemi saman við konur yðar sem veikari ker og veitið þeim virðingu [lítið á þær sem sérlega dýrmætar].“ (1. Pétursbréf 3:7) Þegar maður lætur konu sína finna að hún sé honum dýrmæt hverfur reiði hennar oft eins og dögg fyrir sólu.
Í sumum löndum tíðkast að vísu ekki að hjón hafi mjög náið tilfinningasamband. En eiginmenn, sem fylgja Biblíunni í hjónabandi sínu, hika ekki við að víkja frá staðbundnum erfðavenjum, því að þeir gera sér ljóst hvílíkt gildi það hefur að eiga náin tilfinningatengsl við konu sína. Ef kona veit að maður hennar ber umhyggju fyrir og elskar hana á hún auðveldara með að opna hjarta sitt fyrir honum og það stuðlar að ríkari hamingju í hjónabandinu.
„Sá sem hlustar gaumgæfilega,“ segir bókin The Individual, Marriage, and the Family (Einstaklingurinn, hjónabandið og fjölskyldan), „býr yfir hæfileika til að láta hinn aðilann finna að hann sé sérstaklega mikils metinn, og að það sem hann segi sé athyglisvert og mikilvægt.“ Hjón, sem vilja rækta innilegt samband sín á milli, ættu að gefa því gaum hvernig þau hlusta hvort á annað. Góður áheyrandi veitir maka sínum fulla athygli og reynir að skilja hvað hann er að segja án þess að grípa fram í, andmæla eða breyta um umræðuefni. Það að hlusta gaumgæfilega á maka sinn og rækta með sér óeigingjarnan, persónulegan áhuga á því sem liggur honum á hjarta er lífsblóð innilegs sambands hjóna í milli. — Filippíbréfið 2:3, 4.
Hjúskaparráðgjafar leggja auk þess til að náin tengsl hjóna í milli séu styrkt með þessum hætti: (1) Lærðu að trúa maka þínum en ekki einhverjum öðrum fyrir þínum innstu tilfinningum. (2) Taktu frá einhvern tíma dag hvern, eða í það minnsta vikulega, til að þið hjónin getið truflunarlaust sagt hvoru öðru frá því sem ykkur liggur á huga og hjarta. (3) Segið hvoru öðru frá hinum smáu atvikum hversdagslífsins. (4) Hafið fyrir reglu að sýna hvoru öðru ástúð sem birtist í smáum atriðum — að koma á óvart með smágjöf, vinna óbeðinn eitthvert heimilisverk sem hinum aðilanum geðjast síður að, leggja miða með ástarkveðju í nestiskassann eða faðma maka þinn óvænt að þér.
Jafnvel í ágætasta hjónabandi kemur fyrir að hjón greini á um eitt eða annað. Hér að ofan eru ýmsar tillögur sem ætlað er að koma í veg fyrir að smávægilegur skoðanamunur magnist upp í skilnaðarástæðu.
Jafnvel þótt ágreiningurinn verði alvarlegur ættu þið að vera staðráðin í að varðveita hjónabandið. Hjón, sem slitið höfðu samvistum vegna deilna, sættust þegar þau lásu saman heilræði Biblíunnar um hjónaband í Kólossubréfinu 3:18, 19, staðráðin í að fara eftir þeim. Þegar þau ræddu opinskátt um þær tilfinningar, sem höfðu spillt sambandi þeirra, spurðu þau bæði: „Af hverju sagðir þú mér ekki fyrr að þér væri þannig innanbrjósts?“ Þau hlustuðu hvort á annað og reyndu að sjá málin frá sjónarhóli hvors annars. Núna, eftir að hafa búið saman aftur í næstum tíu ár, segir eiginmaðurinn: „Hjónaband okkar verður betra og betra; svo er fyrir að þakka hinum fögru ráðum í orði Jehóva Guðs. Hamingja okkar hefur verið erfiðisins virði.“
[Rammagrein á blaðsíðu 12]
Hvaða þýðingu hefur tilfinningalegur stuðningur?
„Flest hjón í traustu og langvarandi hjónabandi leggja mikið upp úr tilfinningalegu öryggi þess hjónabands.“ — Dr. April Westfall við Hjúskaparráðgjöf Fíladelfía í Bandaríkjunum.
„Þessi vanhæfni til að skilja rökfræði tilfinninganna er undirrót verulegs hluta óánægju milli kynjanna, og stuðlar að því að gera hjónaband erfiðasta samband sem til er manna í milli.“ — Worlds of Pain, Life in the Working Class Family, eftir Lillian Rubin.
„Í mörgum hjónaböndum er það bæði orsök og afleiðing óhamingju að menn eru ráðvilltir og þar af leiðandi lítt næmir fyrir tilfinningalegum þörfum kvenna sinna.“ — Tímaritið Psychology Today í október 1982.
[Rammagrein á blaðsíðu 13]
Að ræða ágreiningsmál
● Veljið stað og stund sem hentar báðum til að tala saman.
● Einangrið það sem um er deilt og haldið ykkur við það.
● Hafið það viðhorf að leysa vandamál, ekki að sigra í þrætu.
● Einbeitið ykkur að nútímanum, ekki óskyldum, liðnum atburðum.
● Grípið ekki fram í hvort fyrir öðru.
● Reynið að forðast persónulegar árásir og gremju.
● Segið nákvæmlega hvað þið eigið við án þess að særa hvort annað.
● Reynið ekki að lesa hugsanir hvors annars. Biðjið hvort annað um skýringu.
● Verið fús til að láta skoðanir ykkar í ljós og hlusta á skoðanir hvors annars.
● Forðist hnýfil- og skammaryrði.
● Verið fús til að láta undan hjónabandsins vegna.