-
Láttu ekki blekkja þigVarðturninn – 2004 | 1. mars
-
-
5. Hvernig hefur Satan hert á blekkingarstarfsemi sinni á síðustu dögum og hverjir eru sérstaklega skotspónn hans?
5 Satan hefur hert róðurinn núna á endalokatímanum. Honum hefur verið varpað niður til jarðar. Hann veit að hann hefur nauman tíma og er því „í miklum móð“. Hann „afvegaleiðir alla heimsbyggðina“ af því að hann er staðráðinn í að draga eins marga með sér í fallinu og hann getur. (Opinberunarbókin 12:9, 12) Blekkingartilraunir hans eru ekki handahófskenndar heldur reynir hann linnulaust að leiða mannkynið á villigötur.a Hann beitir öllum tiltækum ráðum, þeirra á meðal svikum og undirferli, til að blinda hugi þeirra sem trúa ekki og halda þeim fjarri Guði. (2. Korintubréf 4:4) Þessum blekkingameistara er mikið í mun að gleypa þá sem tilbiðja Guð „í anda og sannleika“. (Jóhannes 4:24; 1. Pétursbréf 5:8) Gleymum ekki að Satan hefur fullyrt í reynd að hann geti snúið hverjum sem er frá Guði. (Jobsbók 1:9-12) Við skulum nú líta á nokkur af vélabrögðum hans og skoða hvernig við getum varað okkur á þeim. — Efesusbréfið 6:11.
-
-
Láttu ekki blekkja þigVarðturninn – 2004 | 1. mars
-
-
a Orðabók segir að beyging sagnarinnar, sem þýdd er „afvegaleiðir“ í Opinberunarbókinni 12:9, „lýsi látlausum verknaði sem er orðinn eðlislægur“.
-