SÖNGUR 135
Jehóva hvetur: „Vertu vitur, sonur minn“
Prentuð útgáfa
1. Ó, gef mér þitt hjarta,
leyf mér að leiða þig,
þá svarað get óvini
sem nú smánar mig.
Ef trúnaði’ og hollustu
ungur heitir mér
og sjálfan þig gefur,
það allur heimur sér.
(VIÐLAG)
Minn sonur kær, mín dýrmæt dóttir,
ver vitur, gleddu hjarta mitt,
og þjóna mér af fúsu hjarta,
mig ávallt heiðri allt líf þitt.
2. Með ánægju gefðu mér
allt það sem þú átt
því þó að þú hrasir
ég gef þér nýjan mátt.
Þótt sumir þig svíki
og vinir bregðist þér
þú aldrei skalt gleyma
hve annt mér um þig er.
(VIÐLAG)
Minn sonur kær, mín dýrmæt dóttir,
ver vitur, gleddu hjarta mitt,
og þjóna mér af fúsu hjarta,
mig ávallt heiðri allt líf þitt.
(Sjá einnig 5. Mós. 6:5; Préd. 11:9; Jes. 41:13.)