Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
Íslensk rit (1985-2027)
Útskrá
Innskrá
Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Velkomin.
Hér er hægt að leita í ritum sem Vottar Jehóva hafa gefið út á fjölda tungumála.
Til að hlaða niður ritum geturðu farið inn á jw.org.
  • Í dag

Þriðjudagur 20. október

„Meyjarnar sem voru viðbúnar fóru með honum inn til brúðkaupsveislunnar.“ – Matt. 25:10.

Í dæmisögunni um meyjarnar talar Jesús um tíu meyjar sem fóru til móts við brúðguma. (Matt. 25:1–4) Þær vonuðust til að geta fylgt brúðgumanum til brúðkaupsveislunnar. Jesús segir að fimm þeirra hafi verið skynsamar og fimm óskynsamar. Þær skynsömu voru tilbúnar að bíða eftir brúðgumanum eins lengi og þörf var á, jafnvel þótt hann kæmi seint um kvöld. Þær tóku því með sér olíulampa til að lýsa upp myrkrið. Þær tóku líka með sér aukaolíu ef brúðgumanum seinkaði. Þannig gátu þær haldið ljósinu á lömpunum lifandi. (Matt. 25:6–10) Þegar brúðguminn kom fóru skynsömu meyjarnar með honum í veisluna. Á svipaðan hátt munu smurðir kristnir menn sem reynast vakandi og trúir þegar Kristur kemur verða dæmdir þess verðugir að sameinast brúðgumanum, Kristi, í himnesku ríki hans. – Opinb. 7:1–3. w24.09 21 gr. 6

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026

Miðvikudagur 21. október

Ég sá mikinn múg af öllum þjóðum. – Opinb. 7:9.

Það gefur okkur byr undir báða vængi að velta fyrir okkur hvernig boðunin hjálpar fólki um allan heim. Milljónir áhugasamra sækja minningarhátíðina á hverju ári og kynna sér Biblíuna með hjálp okkar. Hundruð þúsunda láta skírast og slást í lið með okkur í boðuninni. Við vitum ekki hversu margir eiga enn eftir að taka við boðskapnum en við vitum að Jehóva er að safna saman miklum múg sem kemst lifandi í gegnum þrenginguna miklu. (Opinb. 7:9, 14) Jehóva er herra uppskerunnar og hann sér möguleikann á að fleiri taki við boðskapnum. Við höfum því góða ástæðu til að halda boðuninni áfram. (Lúk. 10:2) Lærisveinar Jesú hafa alltaf þekkst af því hvað þeir eru duglegir að boða trúna. Þegar aðrir sáu hversu djarfmæltir postularnir voru „rann upp fyrir þeim að þeir höfðu verið með Jesú“. (Post. 4:13) Og þegar við boðum trúna hugrökk og af kappi áttar fólk sig kannski á því að við líkjum líka eftir Jesú. w25.03 18 gr. 15; 19 gr. 17, 18

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026

Fimmtudagur 22. október

„Jehóva, hvað er maðurinn að þú gefir honum gaum.“ – Sálm. 144:3.

Það er auðséð af Biblíunni að Jehóva tekur eftir þeim sem virðast lítils virði í augum manna. Jehóva sendi til dæmis Samúel spámann til Ísaí til að smyrja einn af sonum hans til konungs í Ísrael. Ísaí kallaði á sjö af átta sonum sínum til að hitta Samúel en sleppti þeim yngsta, Davíð. En samt var það Davíð sem Jehóva kaus. (1. Sam. 16:6, 7, 10–12) Jehóva sá hvaða mann Davíð hafði að geyma. Hann vissi að þessi ungi maður elskaði hann mjög mikið. Veltu því fyrir þér hvernig Jehóva hefur þegar sýnt að hann taki eftir þér. Hann býðst til að gefa þér ráð sem eru sérsniðin að þörfum þínum. (Sálm. 32:8) Hvernig getur hann það nema hann þekki þig vel? (Sálm. 139:1) Þú sannfærist um að Jehóva hafi áhuga á þér þegar þú fylgir ráðum hans og kemst að því hversu gagnleg þau eru. (1. Kron. 28:9; Post. 17:26, 27) Jehóva tekur eftir því sem þú leggur á þig til að þjóna honum. Hann sér eiginleika þína og vill vera vinur þinn. – Jer. 17:10. w24.10 25–26 gr. 7–9

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026
Velkomin.
Hér er hægt að leita í ritum sem Vottar Jehóva hafa gefið út á fjölda tungumála.
Til að hlaða niður ritum geturðu farið inn á jw.org.
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila