Uppgönguljóð.
121 Ég horfi til fjallanna.+
Hvaðan fæ ég hjálp?
2 Hjálp mín kemur frá Jehóva,+
skapara himins og jarðar.
3 Hann lætur þig aldrei missa fótanna.+
Hann sem verndar þig dottar aldrei.
4 Nei, hann dottar ekki né sofnar,
hann sem verndar Ísrael.+
5 Jehóva verndar þig.
Jehóva er skugginn+ þér til hægri handar.+
6 Sólin vinnur þér ekki mein að degi+
né tunglið að nóttu.+
7 Jehóva verndar þig gegn öllu illu.+
Hann verndar líf þitt.+
8 Jehóva verndar þig í öllu sem þú gerir
héðan í frá og að eilífu.