Sálmur
33 Fagnið yfir Jehóva,+ þið réttlátir,
það hæfir hjartahreinum að lofa hann.
2 Þakkið Jehóva með hörpuleik,
syngið honum lof og leikið undir á tístrengja hljóðfæri.
3 Syngið nýjan söng fyrir hann,+
leikið listilega á strengina og hrópið af gleði.
4 Orð Jehóva er satt og rétt+
og við getum treyst öllu sem hann gerir.
7 Hann safnar saman vatni hafsins eins og með stífluvegg,+
lætur ólgandi vötnin í forðabúr.
8 Öll jörðin óttist Jehóva,+
allir jarðarbúar sýni honum lotningu
9 því að hann talaði – og allt varð til,+
gaf fyrirmæli – og það stóð þar.+
11 En ákvarðanir Jehóva standa að eilífu,+
áform hjarta hans kynslóð eftir kynslóð.
13 Jehóva lítur niður af himni,
hann sér hvert einasta mannsbarn.+
14 Frá bústað sínum
virðir hann fyrir sér alla jarðarbúa.
15 Hann mótar hjörtu allra manna
og fylgist grannt með verkum þeirra.+
18 Augu Jehóva vaka yfir þeim sem óttast hann,+
þeim sem vona á tryggan kærleika hans,
19 til að frelsa þá frá dauða
og halda lífinu í þeim í hungursneyð.+
20 Við bíðum Jehóva með eftirvæntingu,
hann er hjálp okkar og skjöldur.+
21 Hjörtu okkar fagna yfir honum
því að við treystum á hans heilaga nafn.+