Sálmur
Til tónlistarstjórans. Í makalat-stíl.* Maskíl* eftir Davíð.
53 Heimskinginn segir í hjarta sínu:
„Jehóva er ekki til.“+
Ranglætisverk þeirra eru spillt og andstyggileg,
enginn gerir það sem er gott.+
2 En Guð lítur á mennina af himni ofan+
til að sjá hvort nokkur sé skynsamur, hvort nokkur leiti Jehóva.+
3 Þeir hafa allir vikið af réttri braut,
þeir eru allir spilltir.
Enginn gerir það sem er gott,
ekki einn einasti.+
4 Skilja þeir ekki neitt, þessir illvirkjar?
Þeir gleypa í sig fólk mitt eins og brauð
og ákalla ekki Jehóva.+
5 En þeir verða skelfingu lostnir,
hræddari en nokkru sinni fyrr*
því að Guð tvístrar beinum þeirra sem ráðast gegn þér.*
Þú niðurlægir þá því að Jehóva hefur hafnað þeim.
6 Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon!+
Jakob gleðjist, Ísrael fagni
þegar Jehóva flytur herleitt fólk sitt aftur heim.