Jeremía
27 Í upphafi stjórnar Jójakíms* Jósíasonar Júdakonungs kom þetta orð til Jeremía frá Jehóva: 2 „Jehóva sagði við mig: ‚Gerðu þér reipi og ok og leggðu á háls þinn. 3 Sendu þau síðan konunginum í Edóm,+ konunginum í Móab,+ konungi Ammóníta,+ konunginum í Týrus+ og konunginum í Sídon+ með sendiboðunum sem eru komnir til Sedekía Júdakonungs í Jerúsalem. 4 Segðu þeim að flytja húsbændum sínum þessi fyrirmæli:
„Jehóva hersveitanna, Guð Ísraels, segir að þið skuluð flytja húsbændum ykkar þessi skilaboð: 5 ‚Ég er sá sem skapaði jörðina, mennina og dýrin á jörðinni með mínum mikla mætti og útréttum handlegg, og ég gef það hverjum sem ég vil.+ 6 Nú hef ég gefið öll þessi lönd í hendur þjóns míns, Nebúkadnesars+ Babýlonarkonungs. Ég hef jafnvel gefið honum villt dýr merkurinnar til að þau þjóni honum. 7 Allar þjóðir munu þjóna honum, syni hans og sonarsyni þar til tími hans eigin lands rennur upp+ og margar þjóðir og voldugir konungar gera hann að þræli sínum.‘+
8 ‚Ef nokkur þjóð eða ríki neitar að þjóna Nebúkadnesari Babýlonarkonungi og beygja háls sinn undir ok hans mun ég refsa þeirri þjóð með sverði,+ hungursneyð og drepsótt,‘* segir Jehóva, ‚þar til ég hef gereytt henni með hendi hans.‘
9 ‚Hlustið því ekki á spámenn ykkar, spásagnarmenn, draumamenn, galdramenn og særingamenn sem segja við ykkur: „Þið munuð ekki þjóna konungi Babýlonar.“ 10 Þeir boða ykkur lygar og þess vegna verðið þið flutt burt, langt frá landi ykkar. Ég tvístra ykkur svo að þið farist.
11 En þeirri þjóð sem beygir háls sinn undir ok Babýlonarkonungs og þjónar honum leyfi ég að vera um kyrrt* í landi sínu,‘ segir Jehóva, ‚til að rækta það og búa í því.‘“‘“
12 Ég sagði það sama við Sedekía+ Júdakonung: „Beygið háls ykkar undir ok Babýlonarkonungs. Þjónið honum og þjóð hans, þá munuð þið halda lífi.+ 13 Hvers vegna ættir þú og þjóð þín að falla fyrir sverði,+ hungursneyð+ og drepsótt+ eins og Jehóva hefur boðað þeirri þjóð sem vill ekki þjóna Babýlonarkonungi? 14 Hlustið ekki á orð spámannanna sem segja við ykkur: ‚Þið munuð ekki þjóna konungi Babýlonar,‘+ því að þeir boða ykkur lygar.+
15 ‚Ég hef ekki sent þá,‘ segir Jehóva. ‚Þeir fara með lygar í mínu nafni og það leiðir til þess að ég tvístra ykkur svo að þið farist ásamt spámönnunum sem spá fyrir ykkur.‘“+
16 Og við prestana og allt þetta fólk sagði ég: „Jehóva segir: ‚Hlustið ekki á orð spámanna ykkar sem spá fyrir ykkur og segja: „Sjáið til. Áhöldin úr húsi Jehóva verða mjög fljótlega flutt hingað aftur frá Babýlon!“+ Þeir boða ykkur lygar.+ 17 Hlustið ekki á þá. Þjónið konungi Babýlonar svo að þið haldið lífi.+ Hvers vegna ætti þessi borg að leggjast í rúst? 18 En ef þeir eru spámenn og ef orð Jehóva er hjá þeim ættu þeir að biðja Jehóva hersveitanna að þau áhöld sem eftir eru í húsi Jehóva, í höll* Júdakonungs og í Jerúsalem verði ekki flutt burt til Babýlonar.‘
19 Jehóva hersveitanna segir um súlurnar,+ hafið,*+ vagnana+ og áhöldin sem eftir eru í þessari borg, 20 þau sem Nebúkadnesar Babýlonarkonungur tók ekki þegar hann flutti Jekonja Jójakímsson Júdakonung í útlegð frá Jerúsalem til Babýlonar ásamt öllu tignarfólkinu í Júda og Jerúsalem,+ 21 já, Jehóva hersveitanna, Guð Ísraels, segir um áhöldin sem eftir eru í húsi Jehóva, í höll* Júdakonungs og í Jerúsalem: 22 ‚„Til Babýlonar verða þau flutt+ og þar verða þau til þess dags þegar ég sný mér að þeim,“ segir Jehóva. „Þá sæki ég þau og flyt þau aftur á þennan stað.“‘“+