-
1. Konungabók 5:3Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 „Eins og þú veist gat Davíð faðir minn ekki reist hús til heiðurs nafni Jehóva Guðs síns vegna þess að hann átti í stríði við óvini sína allt í kring þar til Jehóva lagði þá undir iljar hans.+
-
-
1. Konungabók 8:17–19Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
17 Davíð faðir minn óskaði þess af öllu hjarta að reisa hús til heiðurs nafni Jehóva Guðs Ísraels.+ 18 En Jehóva sagði við Davíð föður minn: ‚Þú óskaðir þess af öllu hjarta að reisa hús nafni mínu til heiðurs og þú átt hrós skilið fyrir það. 19 En þú átt ekki að byggja þetta hús heldur sonur þinn sem þú munt eignast.* Hann er sá sem á að reisa hús nafni mínu til heiðurs.‘+
-
-
1. Kroníkubók 17:4–6Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
4 „Farðu og segðu við Davíð þjón minn: ‚Jehóva segir: „Það ert ekki þú sem átt að reisa mér húsið sem ég mun búa í.+ 5 Frá því að ég leiddi Ísrael út úr Egyptalandi og allt til þessa hef ég ekki búið í húsi heldur hef ég farið frá tjaldi til tjalds og frá einum búðum til annarra.*+ 6 Ég ferðaðist lengi með öllum Ísrael og skipaði dómara Ísraels sem hirða þjóðar minnar. En spurði ég nokkurn tíma einhvern þeirra: ‚Hvers vegna hafið þið ekki reist mér hús úr sedrusviði?‘“‘
-
-
1. Kroníkubók 22:7, 8Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
7 Davíð sagði við Salómon son sinn: „Ég óskaði þess af öllu hjarta að reisa hús til heiðurs nafni Jehóva Guðs míns.+ 8 En orð Jehóva kom til mín: ‚Þú hefur úthellt miklu blóði og háð mikil stríð. Þú munt ekki reisa hús nafni mínu til heiðurs+ því að þú hefur úthellt miklu blóði á jörðina frammi fyrir mér.
-