25Davíð og umsjónarmenn þjónustuflokkanna tóku síðan frá nokkra af sonum Asafs, Hemans og Jedútúns+ til að lofa Guð og spá með hörpum, strengjahljóðfærum+ og málmgjöllum.+ Hér er skrá yfir mennina sem var falin þessi þjónusta:
3 Af Jedútún,+ það er sonum Jedútúns: Gedalja, Serí, Jesaja, Símeí, Hasabja og Mattitja,+ sex talsins. Þeir voru undir stjórn Jedútúns föður síns sem spáði með hörpu til að þakka Jehóva og lofa hann.+